Pressan

Áhorfendur trúðu ekki eigin augum þegar Musk kynnti fljúgandi Tesla-bíl

Mynd
Ótrúleg tækni.

Elon Musk, forstjóri Tesla, kynnti nýja útgáfu sportbílsins Tesla Roadster við stórbrotna athöfn í McGregor í Texas í gærkvöldi.

Óhætt er að segja að kynningin hafi vakið athygli því þar var kynnt til leiks útgáfa af bílnum sem á að geta svifið í loftinu og framkvæmt ýmsar loftfimleikaæfingar með aðstoð eldflaugatækni SpaceX. Óvíst er þó hversu gagnlegur slíkur búnaður verður fyrir hinn venjulega meðal-Jón.

Í myndskeiðum sem sögð eru frá kynningunni og Daily Mail og Reuters fjalla meðal annars um sést bíllinn meðal annars aka upp ramp sem snýr á hvolf, þeytast út í loftið og snúast áður en sérstakir þrýstihreyflar fara í gang og gera honum kleift að lenda heilu og höldnu.

Musk fullyrti að nýi Roadster myndi slá öll fyrri hraðamet á kappakstursbrautum og sagði stefnt að því að hefja framleiðslu bílsins árið 2028.

„Hann getur í raun flogið eins og eldflaug. Hann getur velt sér í loftinu, framkvæmt ótrúlegar loftfimleikaæfingar og eiginlega gert hvað sem þér dettur í hug,“ er haft eftir Musk.

Samkvæmt umfjölluninni er bíllinn búinn sérstökum þrýstihreyflum sem þróaðir hafa verið í samstarfi við SpaceX. Þeir eiga að gera honum kleift að lyfta sér frá jörðu og svífa í loftinu.

Tesla er jafnframt sagt fullyrða að Roadster geti náð 100 kílómetra hraða úr kyrrstöðu á vel innan við einni sekúndu og náð um 370 kílómetra hámarkshraða.

Musk er þó sagður hafa viðurkennt að öryggi hafi ekki verið í fyrirrúmi við hönnun bílsins.

„Þetta er ekki endilega bíll sem hefur verið hannaður með hámarksöryggi í huga, en á skemmtanaskalanum fær hann ellefu af tíu mögulegum,“ sagði hann samkvæmt fréttinni.

Tesla hefur boðað nýjan Roadster allt frá árinu 2017 og tekið við tryggingagreiðslum frá væntanlegum kaupendum. Musk hefur áður viðrað hugmyndir um að útbúa bílinn með eldflaugatækni, en kynningu og framleiðslu hans hefur ítrekað verið frestað.

Framleiðsla Roadster á að hefjast árið 2028, en óvíst er hvort allir þeir eiginleikar sem sýndir voru á kynningunni verði í bílunum sem fara í sölu. Þá er alls óvíst hvort fluggeta bílsins uppfylli lög og reglur um umferð og flug.