Bandarískur karlmaður hefur verið handtekinn og ákærður fyrir morð á fyrrverandi unnustu sinni, Michelle Parker, sem hvarf sporlaust í Orlando í Flórída fyrir tæpum 15 árum.
Málið vakti á sínum tíma mikla athygli, ekki síst vegna þess að Parker hvarf sama dag og sjónvarpsþáttur var sýndur þar sem hún og maðurinn tókust harkalega á um trúlofunarhring.
Parker var 33 ára þegar hún hvarf 17. nóvember 2011. Fyrr um daginn hafði verið sýndur þáttur af bandaríska sjónvarpsþættinum The People's Court, þar sem hún og fyrrverandi unnusti hennar, Dale Smith yngri, deildu um trúlofunarhring.
Nú, tæpum 15 árum síðar, hefur Smith verið handtekinn og ákærður fyrir morð af annarri gráðu. Bandaríski fjölmiðillinn CBS News greinir frá þessu.
Síðasti maðurinn sem heyrði frá henni
Parker og Smith áttu tvö börn saman. Kvöldið sem hún hvarf náðist hún á upptöku úr öryggismyndavél þegar hún kom með börnin á heimili Smith.
Eric Smith, lögreglustjóri í Orlando, sagði á blaðamannafundi í gær að Smith hefði verið síðasti maðurinn sem vitað væri til að hefði séð eða heyrt frá Parker.
Daginn eftir hvarfið fannst bifreið hennar yfirgefin á bílastæði í Orlando. Í desember sama ár fundu kafarar farsíma hennar í stöðuvatni á svæðinu. Þrátt fyrir umfangsmikla leit hefur Parker aldrei fundist.
Smith hefur lengi verið grunaður um aðild að hvarfinu en hefur alla tíð neitað sök.
Misvísandi svör vöktu athygli
Lögreglan segir að vendingar hafi orðið í rannsókn málsins síðustu mánuði eftir að ákveðið var að fara yfir sönnunargögn að nýju með aðstoð nútímatækni.
„Við fórum aftur yfir vitnisburði og misvísandi framburð hins grunaða og nýttum háþróaðar stafrænar rannsóknaraðferðir til að finna og greina frekari sönnunargögn,“ sagði lögreglustjórinn.
Rannsóknarlögreglumaðurinn Phillip McMican sagði að Smith hefði verið yfirheyrður margoft í gegnum árin og að ósamræmi hefði komið fram í svörum hans.
„Hann var ítrekað spurður mjög nákvæmra spurninga í gegnum árin og gaf mismunandi svör við sömu spurningunum.“
McMican sagði að framfarir í réttarrannsóknartækni hefðu gert rannsakendum kleift að greina gögn úr farsímum, tölvum og ökutækjum með mun nákvæmari hætti en áður. Þá hefðu ný sönnunargögn komið fram á síðastliðnu ári.
Lögreglan hefur ekki upplýst nákvæmlega hvaða gögn leiddu til handtökunnar en segir öll sönnunargögn benda til þess að Smith hafi myrt Parker og komið líki hennar fyrir á óþekktum stað.