Karlmaður í Bangor, Maine, í Bandaríkjunum hringdi skelkaður í lögregluna eftir að kona hringdi í hann, hótaði að borða hann og mætti svo heim til hans þar sem hún ítrekaði hótunina á meðan hún veifaði hníf.
Meint atvik átti sér stað á fimmtudaginn í síðustu viku. Konan heitir Sarea Duane og er 22 ára gömul. Hún var handtekin vegna málsins og ákærð fyrir hótun með hættulegu vopni.
Málið hefur vakið athygli netverja sem rifja upp sambærilegt mál sem átti sér stað árið 2012, en þar fannst karlmaður að nafni Karl Laventure á golfvelli í Georgíu. Hann var á nærbuxunum og röflaði mikið um mannát, trúarbrögð og rapparann Tupac Shakur. Samkvæmt lögreglumanni sem hafði afskipti af Laventure var það eftirminnilegt þegar Laventure sagði við hana:
„Ég mun borða þig. Mig langar ekki að gera það en, en mun samt gera það.“
Laventure gekk að lögreglumönnum, virti fyrirmæli þeirra að vettugi og streittist á móti handtöku. Á endanum þurfti lögregla að beita piparúða og rafvopni til að yfirbuga hann og færa í fangaklefa. Þegar það rofaði til hjá Laventure greindi hann lögreglu frá því að hann hefði reykt gras sem búið var að blanda við fíkniefni sem kallast baðsölt.
Þetta er ekki eina furðulega málið sem lögreglan í Bangor glímdi við í síðustu viku, en tveimur dögum áður en hin unga Sarea Duane hótaði að snæða karlmann hafði lögreglan í tvígang afskipti af manni að nafni Ryan Sawyer sem hafði verið til vandræða, svo sem með því að afklæðast á sjúkrahúsi, kasta eplum í bíla á ferð og skemma glugga hjá fyrirtækjum.