Pressan

Gervigreind spáir fyrir um hvenær þriðja heimsstyrjöldin muni brjótast út - Tímasetningin er óhugnanlega nærri

Mynd

Rúm ár 80 ár eru liðin frá því að seinni heimsstyrjöldinni lauk 2. september árið 1945. Árið 2023 lýsti Donald Trump Bandaríkjaforseti því yfir að við værum „á barmi þriðju heimsstyrjaldarinnar“. En mun hún raunverulega eiga sér stað og þá hvenær? Gervigreindin er komin með dagsetningu. 

Á þessum 80 árum hafa geisað stríð og innrásir víðs vegar um heiminn, þar á meðal stríð Rússlands og Úkraínu og þjóðarmorð Ísraela á Gaza, en ekkert þeirra hafa ráðamenn viljað nefna sem þriðju heimsstyrjöldina. Gervigreindin hefur nú spáð því að þriðja stórfellda stríðið gæti brotist út á næstu árum.

„Ef ég ætti að giska, þá myndi ég segja að ólíklegt sé að þriðja heimsstyrjöldin hefjist á næstu 1–2 árum, en taka verður alvarlega hættuna á átökum milli stórvelda á næsta áratug,“ segir gervigreindin í umfjöllun Unilad.

„Mesta hættan, að mínu mati, væri keðjuverkun: bein átök milli Rússlands og NATO, átök milli Bandaríkjanna og Kína vegna Taívans, eða svæðisbundið stríð sem dregur nokkur stórveldi út í bein átök.“

Mynd
Donald Trump Bandaríkjaforseti.
Donald Trump

Hvenær spáir gervigreindin því að þriðja heimsstyrjöldin muni hefjast?

Gervigreindin spáir ekki fyrir um neitt yfirvofandi; hún segir ekkert sérstakt munu gerast á árunum 2026–2027. Hún telur að á tímabilinu 2028–2035 gæti ástandið hins vegar orðið áhyggjuefni. Fram kemur að þessi fimm ár marki tímabil þar sem „alvarleg átök gætu magnast upp“. Mikilvægt er þó að hafa í huga að engar áreiðanlegar vísbendingar eru um að svo verði.

Gervigreindin segir einnig að óvissan sé „of mikil“ til að hægt sé að setja fram marktæka spá fyrir tímabilið eftir 2035. Eins og við vitum geta aðstæður breyst verulega á örfáum mánuðum.

„En ef ég yrði endilega að nefna dagsetningu, sem hreina ágiskun, þá myndi ég segja 1. október 2030,“ bætti hún við. Gervigreindin vill þó ekki ala á ótta; hún telur að „við munum komast í gegnum næstu ár án allsherjar heimsstyrjaldar“, þótt „hættan sé raunveruleg“. „Hættan er raunveruleg, en heimsstyrjöld er ekki óumflýjanleg og ríki hafa ríka hagsmuni af því að koma í veg fyrir hana.“ 

Gervigreindin tók einnig fram að „hættuleg alþjóðleg staða þýðir ekki sjálfkrafa að stríð sé yfirvofandi“. Tekur gervigreindin fram að hér sé um að ræða „gróft mat, en ekki tölfræðilega áreiðanlegar spár.“ „Það er enginn traustur grunnur fyrir því að tilgreina eitthvert ákveðið ár sem upphaf þriðja heimsstyrjaldarinnar.“

Spár gervigreindarinnar koma í kjölfar ummæla Wes Streeting, varnarmálaráðherra Bretlands, sem sagði Kreml stærstu ógnina við þjóðaröryggi. Streeting sagði við blaðið The Sun: „Sú alvarlega staðreynd blasir við að hættan á stríði er nú meiri en hún hefur nokkurn tímann verið á minni ævi.“ Árið 2024 hélt Trump því fram að Joe Biden hefði „leitt okkur að barmi þriðja heimsstyrjaldarinnar“ og sagðist sjálfur myndu „koma á friði með styrk“ sem forseti.

Mynd
Wes Streeting