Bandarísk alríkisyfirvöld rannsaka nú Ilhan Omar, þingkonu Demókrataflokksins frá Minnesota, vegna gruns um brot á innflytjendalöggjöf og mögulegs fjármálamisferlis.
Samkvæmt umfjöllun New York Post er meðal annars til rannsóknar hvort Omar hafi fengið bandarískan ríkisborgararétt á grundvelli rangra upplýsinga um fæðingarár sitt.
Alríkislögreglumenn gerðu húsleit á heimili Omar og eiginmanns hennar, Tim Mynett, í Washington á mánudagsmorgun. Þar lagði lögregla meðal annars hald á farsíma þingkonunnar, einkatölvur, minnisbækur og vegabréf hennar.
New York Post greinir frá því að rannsóknirnar séu tvær og fari fram hjá aðskildum embættum. Saksóknarar í Minnesota rannsaki möguleg brot á innflytjendalöggjöf en embætti Jeanine Pirro, alríkissaksóknara í Washington, hafi fjármál hjónanna til skoðunar.
Samkvæmt umfjöllun Wall Street Journal, sem New York Post vitnar til, sé markmið rannsóknarinnar á innflytjendamálum Omar að kanna hvort grundvöllur sé fyrir því að svipta hana bandarískum ríkisborgararétti og vísa henni úr landi. Omar er fædd í Sómalíu en kom til Bandaríkjanna ásamt fjölskyldu sinni árið 1995.
Óvissa um fæðingarárið
Rannsóknin beinist meðal annars að því hvort Omar hafi öðlast ríkisborgararétt í gegnum föður sinn, Nur Omar Mohamed, með því að gefa rangar upplýsingar um aldur sinn.
Faðir hennar fékk bandarískan ríkisborgararétt árið 2000. Í sumum gögnum er Omar sögð fædd 4. október 1981 en í öðrum 4. október 1982. Ef fyrra ártalið reynist rétt hefði Omar verið orðin 18 ára þegar faðir hennar fékk bandarískan ríkisborgararétt árið 2000 og því hugsanlega ekki uppfyllt aldursskilyrði þess að öðlast ríkisborgararétt í gegnum hann.
New York Post segir að starfsmenn Omar hafi árið 2019 beitt sér fyrir því að fæðingarár hennar yrði skráð 1982 í stað 1981 í opinberum upplýsingaveitum, meðal annars í skrám Bandaríkjaþings.
Blaðið greinir jafnframt frá því að bandarísk yfirvöld hafi fengið ábendingar um mögulegt misræmi í fæðingarupplýsingum hennar á valdatíma Joes Biden, en þá hafi ekki verið talið nægilegt tilefni til að halda rannsókn áfram vegna skorts á sönnunargögnum.
Omar og fjölskylda hennar flúðu borgarastyrjöldina í Sómalíu og komu til Bandaríkjanna árið 1995. Kosningateymi hennar hefur áður sagt að hún eigi ekki fæðingarvottorð vegna þeirra aðstæðna sem fjölskyldan bjó við á flóttanum.
Segir Trump vilja þagga niður í sér
Yfirvöld hafa einnig gefið út meira stefnur til fjölskyldumeðlima Omar um að bera vitni fyrir rannsóknarkviðdómi, þar á meðal systur hennar, Sahra Noor.
Omar hefur alfarið hafnað ásökunum um lögbrot og telur rannsóknina pólitískt drifna.
„Trump forseti myndi gjarnan vilja losna við eina áhrifamestu framsæknu röddina á Bandaríkjaþingi. Það er enginn grundvöllur fyrir þessu,“ sagði skrifstofa hennar í yfirlýsingu sem New York Post vitnar til.
Trump hefur á móti neitað því að hafa haft nokkur afskipti af rannsókninni. Hann lét þó hörð orð falla um þingkonuna á mánudag, kallaði hana „gjörspillta“ og „hræðilega manneskju“.
„Hún gerir ekkert annað en að kvarta. Hún kemur frá landi sem er í raun ekki einu sinni land. Svo kemur hún hingað og kvartar yfir stjórnarskránni okkar,“ sagði Trump við fréttamenn.