Donald Trump Bandaríkjaforseti birti í gær myndskeið af manni sem varð fyrir banvænni árás tígrisdýrs í dýragarði í Bretlandi um liðna helgi.
Myndskeiðið birti Trump á samfélagsmiðli sínum, Truth Social, en þar er hann vanur að birta pólitísk skilaboð, myndskeið frá opinberum viðburðum og ummæli stuðningsmanna sinna.
„Don't ever mess with nature! President DJT,“ skrifaði forsetinn sem hvatti fólk til að ögra ekki náttúrunni.
Bandaríska dagblaðið Washington Post greinir frá málinu og segir óljóst hvers vegna Trump ákvað að deila myndskeiðinu.
Árásin átti sér stað síðastliðinn laugardag í Yorkshire Wildlife Park í Bretlandi. Samkvæmt breskum fjölmiðlum hafði maðurinn klifrað inn á svæði dýrsins sem vegur um 190 kíló.
Maðurinn mun hafa ætlað að láta taka af sér ljósmynd með dýrinu þegar það réðst á hann með þeim afleiðingum að hann lést.
Myndskeiðið sem Trump birti er 41 sekúnda að lengd og án hljóðs. Þar sést tígrisdýrið bíta manninn aftan í hálsinn og halda honum niðri á meðan hann reynir að losa sig. Andlát mannsins sjálft sést þó ekki á myndskeiðinu.
Aðeins mínútu eftir fyrri færsluna birti Trump annað myndskeið sem sýndi nokkrar árásir ljóna á fólk. Það var 24 sekúndur að lengd og hafði verið klippt saman við fjöruga tónlist.
Trump birti síðan þriðja myndskeiðið, sem greinilega er gert með gervigreind. Þar sést forsetinn leika sér við tígrisdýr sem virðist skyndilega ætla að ráðast á hann. Trump lætur það þó ekki á sig fá, heldur eltir dýrið uppi og yfirbugar það áður en þeir tveir fallast að lokum í faðma.