Pressan

Ótrúlegt mál í Finnlandi – Geymdi látna foreldra sína í frystikistum í áratugi

Mynd
Svona var aðkoman hjá lögreglu. Mynd/Finnska lögreglan

81 árs gamall maður í Finnlandi hefur verið dæmdur til sektargreiðslu fyrir að hafa geymt lík foreldra sinna í frystikistum í nærri þrjá áratugi. Yngri bróðir hans, sem er 70 ára, hlaut einnig sekt en fyrir að hafa tekið þátt í að grafa við fjölskyldugrafreit þeirra í kirkjugarði.

Finnska ríkisútvarpið Yle greinir frá því að eldri bróðirinn, sem er 81 árs, hafi geymt lík foreldra sinna í skúr í borginni Turku. Foreldrarnir létust af náttúrulegum orsökum árin 1994 og 1995, en lík þeirra voru aldrei jarðsett.

Það var ekki fyrr en lögreglu barst ábending sumarið 2024 sem málið komst upp. Við rannsókn fundust lík foreldranna í tveimur frystikistum sem voru faldar undir drasli í skúr. Önnur frystikistan var í gangi en hin ekki.

Sagðist hafa ætlað að flytja líkin til Bandaríkjanna

Fyrir dómi neitaði eldri bróðirinn sök og hélt því fram að hann hefði einungis viljað uppfylla ósk foreldra sinna um að lík þeirra yrðu flutt til Bandaríkjanna. Af ýmsum ástæðum hefði þó aldrei orðið af flutningnum.

Dómurinn hafnaði þeirri málsvörn og taldi að jafnvel þótt foreldrarnir hefðu óskað eftir þessu leysti það manninn ekki undan refsiábyrgð.

Það sem gerir málið enn sérstæðara er að grunsemdir höfðu þegar vaknað undir lok tíunda áratugarins um að maðurinn geymdi lík foreldra sinna. Hann var hins vegar ekki ákærður á þeim tíma þar sem hann hélt því fram að þau hefðu verið jarðsett erlendis.

Bræðurnir grófu sjálfir við fjölskyldugrafreitinn

Bræðurnir, sem eru 81 og 70 ára, voru einnig ákærðir fyrir að hafa skemmt fjölskyldugrafreit í kirkjugarði í Turku í október í fyrra.

Þeir höfðu þá grafið allt að 80 sentímetra djúpa holu við grafreitinn og unnið þar að greftri í nokkra daga. Þeir sögðust hafa ætlað að styrkja undirstöður grafreitsins og lagfæra hann, en dómurinn féllst ekki á þá skýringu.

Athygli vekur að legsteinn með nöfnum foreldranna hafði staðið í kirkjugarðinum um áratugaskeið þótt lík þeirra hefðu allan tímann verið geymd í frystikistunum.

Eldri bróðirinn var dæmdur fyrir þrjú brot og þarf að greiða sekt að jafnvirði um 280 þúsund íslenskra króna. Yngri bróðirinn var dæmdur til að greiða sem nemur rúmlega 90 þúsund krónum fyrir þátt sinn í málinu sem tengdist grafreitnum.