Pressan

Fyrrverandi tengdadóttir Trump fær reisupassann eftir fréttir um meinta spillingu

Mynd
Mynd/Getty

Sendiherra Bandaríkjanna í Grikklandi hefur verið beðinn um að segja af sér embætti. Frá þessu greindi nýr blaðamannafulltrúi Donalds Trumps Bandaríkjaforseta, Katie Zacharia.

Þessi tíðindi berast í skugga frétta um meinta spillingu sendiherrans, Kimberly Guilfoyle, sem er fyrrverandi tengdadóttir forsetans. Guilfoyle er annars vegar sökuð um að hafa í júlí á síðasta ári, rétt áður en hún tók við embætti, reynt að þrýsta á einn styrktaraðila forsetans að greiða niður kreditkortaskuld hennar. Styrktaraðilinn hefur eins haldið því fram að hann hafi áður greidd Guilfoyle milljónir og taldi það vera þeirra sameiginlega skilning að fyrir peningana ætti hann að fá pólitískt aðgengi að forsetanum og hans æðstu embættismönnum. Hann telur sig ekki hafa fengið þá fyrirgreiðslu sem hann vænti og því hafnaði hann að greiða skuldina.

Einnig hefur verið fjallað um framkomu sendiherrans gegn starfsmönnum sendiráðsins og hefur hún einnig verið sökuð um að beita sér fyrir viðskiptahagsmunum grísks byggingar- og orkufyrirtækis, svo sem með því að hleypa hagsmunagæslumanni fyrirtækisins á diplómatíska fundi.

Guilfoyle var áður gift Gavin Newsom, ríkisstjóra Kaliforníu, en var svo trúlofuð Donald Trump yngri.

Zacharia vísaði ekki í ásakanirnar á hendur sendiherranum þegar hún tilkynnti um fyrirhugaða afsögn. Zacharia sagði:

„Við höfum beðið Guilfoyle sendiherra að segja af sér. Hún hefur verið dásamlegur liðsauki við teymi okkar og við óskum henni velfarnaðar.“

Trump tók fastar til orða í samtali við blaðamenn í gær. Þar sagðist hann hafa það til skoðunar að reka Guilfoyle vegna frétta um meinta spillingu. Hann sagðist ekki vera lukkulegur með sendiherrann.

„Við erum að skoða þetta, já, við erum ekki ánægð.“

Lögmenn Guilfoyle hafa neitað ásökunum um spillingu. Áður en Guilfoyle tók við embætti hafi hún freistað þess að gera upp skuldir og hafi því leitað til styrktaraðilans sem skuldaði henni pening fyrir ráðgjöf og annað.

Styrktaraðilinn, Eric Deters, var ekki sáttur við þessar skýringar lögmannanna og boðaði meiðyrðamál gegn sendiherranum.