Pressan

Saklaust samtal endaði með morði – Þrettán ára drengur ákærður

Mynd
Mynd/Pexels

Þrettán ára drengur hefur verið ákærður fyrir að hafa stungið 36 ára fjölskylduföður til bana í Sydney í Ástralíu á föstudagskvöld. Maðurinn hafði skömmu áður ætlað að gera nokkrum ungmennum greiða og aðstoða þau við að komast örugglega heim.

Árásin átti sér stað í Mount Druitt í vesturhluta Sydney, en skammt frá eru verslunarmiðstöð og lestarstöð. Þegar lögregla og sjúkralið komu á vettvang lá maðurinn alvarlega særður eftir að hafa verið stunginn. Hann lést á vettvangi þrátt fyrir lífgunartilraunir.

Að sögn lögreglu var maðurinn á leið heim þegar hann staldraði við til að ræða við ungmenni sem hann þekkti í gegnum fjölskyldu og vini. Annar hópur ungmenna, sem var á svæðinu, virðist hins vegar hafa móðgast yfir því að maðurinn væri að ræða við ungmennin. Í kjölfarið kom til átaka sem enduðu með því að maðurinn var stunginn til bana.

„Hann var að gera góðverk“

Darrin Batchelor, yfirlögregluþjónn í Mount Druitt, segir að maðurinn hafi ætlað að hjálpa ungmennunum að komast heim og meðal annars farið að hraðbanka til að taka út pening fyrir þau.

„Hann var að gera góðverk. Hann fór að hraðbanka til að taka út peninga svo ungmennin kæmust örugglega heim,“ sagði Batchelor á blaðamannafundi í morgun.

Lögregla telur að 13 ára drengurinn hafi stungið manninn tvisvar í búkinn. Drengurinn, sem hafði áður komið við sögu lögreglu, var handtekinn á sunnudag og ákærður fyrir morð.

Sextán ára drengur hefur einnig verið handtekinn og ákærður fyrir að hafa aðstoðað eftir að morðið var framið.

Tilefnislaus árás

Batchelor, sem hefur starfað innan lögreglunnar í þrjá áratugi, segist eiga erfitt með að skilja tilgang árásarinnar.

„Ég hef starfað í lögreglunni í 30 ár og á erfitt með að skilja hversu tilgangslaus þessi árás var. Maðurinn var einfaldlega að sinna sínu, staldraði við til að ræða við fjölskylduvini og nú er hann látinn,“ segir hann.

Hinn látni lætur eftir sig börn og fjölskyldu sem er harmi slegin.

Lögregla hefur lagt hald á upptökur úr öryggismyndavélum og farsímum og útilokar ekki frekari handtökur í tengslum við málið.