Nýleg könnun á vegum stefnumótaþjónustunnar Tawkify sýnir hversu mikil áhrif heimilið hefur á skoðanir einhleypra Bandaríkjamanna, 40 ára og eldri. Þegar þú býður stefnumótafélaganum þínum heim þá byrjar hann að dæma heimili þitt um leið og hann stígur yfir þröskuldinn.
Reyndar segjast 50% einhleypra, 40 ára og eldri, missa áhugann samstundis eftir að hafa séð heimili stefnumótafélagans og flestir mynda sér skoðun á fyrstu mínútunum.
Hvað vekur fyrst athygli þeirra? Allt að 83% þátttakenda í könnuninni taka strax eftir almennu hreinlæti og óreiðu, en óþefur fylgir fast á hæla þess með 76%. Þá hafa 36% fundið upp á afsökun til að yfirgefa stefnumót snemma vegna óþrifalegs umhverfis og 30% hafa slitið öllu sambandi alfarið vegna þess hvernig stefnumótafélaginn bjó.
Notendur Reddit eru eindregið á því máli að lélegt hreinlæti sé algjör frávísunarástæða, óháð því hversu vel viðkomandi uppfyllir aðrar kröfur.
„Ég fór á stefnumót með nokkuð þekktum rithöfundi í Los Angeles. Við fórum heim til hans eftir góðan kvöldverð í Pasadena og viti menn: það var algjör sóðaskapur hjá honum. Skítugt, drasl út um allt og köngulóarvefir hvarvetna. Ég gekk út og leit aldrei um öxl,“ sagði einn notandi á Reddit.
„Baðherbergið hjá þessum náunga var greinilega skítugt og þar var hvorki að finna klósettpappír, sápu né handklæði,“ sagði annar. „Það sama gilti um eldhúsvaskinn. Ég var svo hissa! Ég komst ekki nógu hratt út og ég er ekki stolt af því að segja frá því að ég hætti bara að svara honum.“
Heimili stefnumótafélagans getur einnig leitt í ljós ýmis viðvörunarmerki. Samkvæmt Tawkify hafa 57% einhleypra Bandaríkjamanna yfir fertugu rekist á slík merki heima hjá væntanlegum maka, merki sem voru algjörlega ósýnileg þegar einstaklingarnir hittust úti í bæ. Augljós merki um ringulreið eða forðunarhegðun voru meðal annars flutningakassar sem ekki var enn búið að taka upp úr og ganga frá, og hrúgur af óþvegnu leirtaui í vaskinum.
Það sem sló endanlega á áhugann, og þótti „nógu alvarlegt til að hætta við frekari kynni“, var að sjá myndir af fyrrverandi maka á heimilinu (75%). Önnur helstu viðvörunarmerki voru öryggismyndavélar sem beint var beint að rúminu (62%) og skortur á klósettsetu eða klósettpappír (59%). Athyglisvert er að þátttakendur töldu baðherbergið vera það herbergi sem best leiddi í ljós raunverulegan persónuleika fólks.
Viðvörunarmerki tengd aðstæðum voru meðal annars að deita manneskju yfir fertugt sem býr enn hjá foreldrum sínum, eða býr með fullorðnum börnum eða herbergisfélögum. Stærð og skipulag húsnæðis skipta einnig máli fyrir möguleika á sambandi: 41% einhleypra yfir fertugt telja íbúð með aðeins einu svefnherbergi og einu baðherbergi vera verulegt neikvætt merki á þessu stigi lífsins.
Þá viðurkenndu 72% þeirra sem tóku þátt í könnuninni að þau myndu endurskoða það að flytja inn með maka ef kröfur þeirra um hreinlæti samræmdust ekki.
Á hinn bóginn getur frábært heimili einnig verið stór kostur. 38% einhleypra Bandaríkjamanna fundu fyrir mun meira aðdráttarafli gagnvart þeim sem þau deituðu eftir að hafa séð heimili viðkomandi, og bentu á ákveðna eiginleika heimilisins sem tryggðu annað stefnumót.
Efst á blaði var hreint baðherbergi með handklæði (60%), þar á eftir kom „heimili sem ber þess merki að þar sé búið, fremur en að það sé sviðsett“ (35%) og þægileg sæti fyrir gesti (28%). Meira en tveir þriðju hlutar (68%) töldu að fólk með vel hirt heimili hefði fullkomna stjórn á lífi sínu.
Hvað útlitið varðar skoraði „hlýlegur og hefðbundinn“ stíll hæst, en þar á eftir komu náttúrulegir eða hlutlausir tónar og sveitastíll.
Og stærðin skiptir ekki öllu máli: 55% þátttakenda myndu frekar vilja fara á stefnumót með manneskju sem býr í litlu og smekklegu húsnæði en einhverjum sem býr í risastóru og prjálmiklu húsi.
Þegar öllu er á botninn hvolft getur það að stíga inn á heimili stefnumótafélagans annað hvort innsiglað frekari kynni, eða fengið þig til að flýja sem fætur toga.