Pressan

Pútín er búinn að mála sig út í horn – Eitt getur bjargað honum

Mynd
Vladímír Pútín, Rússlandsforseti. Mynd/Getty

Hvað þarf til að ljúka stríðinu í Úkraínu? Fram að þessu hafa viðræður ekki verið nærri því að skila árangri en kannski er leiðin út úr stríðinu nær Pútín en mann skyldi gruna.

Þetta er mat eins þekktasta sérfræðingsins í málefnum Rússlands, Kremlar og Pútíns. Hann heitir Mark Galeotti.

Allt frá því að Rússar réðust inn í Úkraínu í febrúar 2022 hefur það verið ófrávíkjanlegt markmið Pútíns að ná fullum yfirráðum yfir hinum fjóru úkraínsku héruðum Kherson, Zaporrizjzja, Luhansk og Donetsk. Þau tvö síðastnefndu mynda Donbas.

Ef rússneska hernum tekst að ná öllu Donbas á sitt vald þá hefur Pútín raunhæfan möguleika á að segjast hafa náð markmiði sínu með innrásinni.

Þetta sagði Galeotti í samtali við B.T. „Pútín virðist hafa þörf fyrir að geta sagst hafa frelsað allt Donbas og ekki bara stærsta hluta héraðsins. Í hreinskilni sagt, ef hann gerir það og lýsir síðan yfir sigri, þá er það ekki nálægt því markmiði sem hann setti sér. En ég held að flestum Rússum, að ofurþjóðernissinnuðum öfgamönnum undanskildum, myndi létta við að stríðinu lyki, óháð því hversu mikið þeir munu röfla og kvarta við eldhúsborðið yfir því að stríðið hafi ekki verið þess virði, munu þeir líklega sætta sig við söguna um að þetta sé stór sigur.“

En það er ekki svo auðvelt fyrir Rússa að ná öllu Donbas á sitt vald. Þeir hafa náð stærstum hluta Luhansk á sitt vald en staðan er önnur í Donetsk.

Rússar hafa sótt hægt og bítandi fram á síðustu árum en á síðustu mánuðum hafa þeir lent á vegg, næstum í bókstaflegri merkinu.

Við tvo stóra bæi, sem Úkraínumenn hafa á valdi sínu, Kramatorsk og Slavjansk, hafa Úkraínumenn byggt svo mikil varnarvirki að þeim hefur verið lýst sem „virkisbeltinu“. Á þessu svæði gengur sókn Rússa löturhægt og krefst mikilla fórna, ekki minnst mannslífa.

Aðeins norðar í Donetsk hefur Úkraínumönnum að undanförnu tekist að hrekja rússneskar hersveitir aftur á bak nærri Lyman. Misstu Rússar í heildina 190 ferkílómetra úkraínsks lands úr höndum sér í september.

Það er því mjög langt í að Rússar nái restinni af Donbas á sitt vald og færi Pútín þar með útleið úr stríðinu.  „Það virðist vera ætlunin að Kramatorsk og Slavjansk verði notaðar sem hugsanleg útleið úr stríðinu,“ sagði Galeotti.

Galeotti benti á að ef Rússum tekst að ná bæjunum á sitt vald þá verði fórnarkostnaðurinn gríðarlegur en kannski snúist þetta meira um að Pútín geti með því gefið sjálfum sér tækifæri til að lýsa yfir sigri og létta pressunni af þjóð sinni sem finnur í síauknum mæli fyrir áhrifum stríðsins í hinu daglega lífi.