Farþegaþota indverska flugfélagsins IndiGo þurfti að nauðlenda í Hyderabad á sunnudag eftir að eldur kviknaði í farþegarými vélarinnar. Mikil skelfing greip um sig meðal farþega áður en áhöfninni tókst að ná tökum á ástandinu.
Um er að ræða Airbus A321-farþegaþotu sem var á leið frá Delhi til Chennai.
Í fyrstu var óljóst hvaðan reykurinn barst og var því mikill ótti meðal farþega. Sjónarvottur lýsti atvikinu í samtali við indverska fjölmiðilinn India Today og sagði marga farþega ekki hafa haft hugmynd um hvað væri að gerast. Aðstæður hefðu orðið sífellt ógnvænlegri og að lokum hefði skelfing gripið um sig.
Eftir nokkra stund tókst áhafnarmeðlimum að finna upptök eldsins og kom þá í ljós að um var að ræða hleðslubanka sem var geymdur í farangurshólfi fyrir ofan sætin.
INDIGO FLIGHT scary FIRE on 6E -6115 , Delhi - Chennai Route on 11th October. Fire breaks on overhead Cabin luggage zone of Passanger from a Power-Bank device of Passanger. Pilot diverted to Hyderabad International airport as precautionary landing. Another concious & instinctive reaction of the passanger save the airplane from major Inflight fire Accident. @icao @MoCA_Ind @PIB_India @aviationWeek @MoCA_Ind @airmainengineer @BcasHq @atcguildindia @DelhiAirport @HyderabadAirpo1 @Indian_Aviation
— Capt. B. Parthosarothy (@pilotpartho) October 11, 2026
Eldur í litíumrafhlöðum er talinn varasamur um borð í flugvélum þar sem rafhlöðurnar geta hitnað mikið og kviknað aftur í þeim, jafnvel þótt tekist hafi að slökkva eldinn. Áhöfnin brást hárrétt við og kældi rafhlöðuna.
Flugmennirnir ákváðu engu að síður að breyta flugleiðinni og nauðlenda á Rajiv Gandhi-alþjóðaflugvellinum í Hyderabad. Enginn slasaðist í atvikinu.
Atvikið minnir á sambærilegt mál sem kom upp í september um borð í farþegaþotu hollenska flugfélagsins KLM. Þá sprakk hleðslubanki á viðskiptafarrými Boeing 777-þotu sem var á leið frá Amsterdam til Curaçao í Karíbahafi.
Sprengingin skildi eftir brunamerki á flugsæti og gluggatjaldi vélarinnar. Flugmennirnir neyddust til að snúa vélinni við yfir Atlantshafi og halda aftur til Amsterdam eftir um fimm og hálfrar klukkustundar flug.
Hleðslubankinn var í eigu Camiels Eurlings, fyrrverandi forstjóra KLM, sem er sagður hafa verið að hlaða tækið meðan á fluginu stóð, þvert á öryggisreglur flugfélagsins. Einn farþegi hlaut minniháttar meiðsli í því atviki.