Pressan

Áttu fótboltatreyju? – Hryllilegar aðstæður þeirra sem búa þær til

Mynd
Getty Images

Margir hafa eflaust rekið upp stór augu yfir verðmiðanum á fótboltatreyjum merktum stórum félögum eða landsliðum. Þær eru einfaldlega rokdýrar, hvort sem er fyrir börn eða fullorðna, ef þær eru merktar ákveðnum félögum eða landsliðum.

BBC Sport afhjúpaði nýlega hörmulegar aðstæður fólksins sem býr treyjurnar til. Í umfjöllun miðilsins kemur fram að fólkið fái minna en sem nemur 170 íslenskum krónum á tímann fyrir að búa til treyjur fyrir félög á borð við Arsenal, Celtic, Liverpool og Real Madrid.

Þá er hitinn í verksmiðjunum oft yfir 35 gráðum, starfsfólkið er svívirt og vanvirt þegar framleiðslumarkmiðin nást ekki og öryggismál tækjabúnaðarins eru oft í ólagi.

Adidas er meðal þeirra sem fjallað er um í umfjöllun BBC Sport. Fyrirtækið á engar af umræddum verksmiðjum en sumar þeirra eru aðalframleiðendur fyrirtækisins og eiga að falla undir vinnustaðastandarda Adidas.