Yfirvöld á Sri Lanka hafa sent teymi lögmanna til Sádí-Arabíu til að ræða við þarlend stjórnvöld vegna dauðadóms yfir verkamanni frá Sri Lanka. Hann var dæmdur til dauða fyrir Facebookfærslu. Það vekur undrun hjá stjórnvöldum á Sri Lanka að málið hefur varla fengið neina athygli á heimsvísu.
The Independent segir að stjórnvöld á Sri Lanka hafi sent ákall til heimsbyggðarinnar um aðstoð við að bjarga manninum, sem er 24 ára, frá aftöku í Sádí-Arabíu. Hann var dæmdur fyrir að móðga spámanninn Múhameð í færslu á Facebook.
Anojan Sivarasa var dæmdur til dauða í síðasta mánuði fyrir að hafa skrifað ummæli um spámanninn Múhameð á Facebook en ummælin eru talin vera guðlast.
Hann var handtekinn í byrjun júlí en þá hafði hann verði tæpt ár í landinu.
Vandræði hans hófust með umræðum á Internetinu um myndband sem sýndi mann sparka í flækingshund sem hafði slegist í för með nokkrum pílagrímum úr röðum Hindúa. Hann svaraði niðrandi færslu um hindúisma með ummælum sem þóttu móðgandi við spámanninn. Hann eyddi færslunni skjótt og birti myndband þar sem hann baðst afsökunar. En skjáskot af færslu hans voru send til vinnuveitanda hans og yfirvalda.
Sakadómur dæmdi hann til fimm ára fangelsisvistar og til greiðslu sektar sem nemur um 100 milljónum íslenskra króna. Dómstóllinn hafnaði því að áfrýja mætti málinu.
Um miðjan september fóru saksóknarar fram á að mál Anojan yrði tekið fyrir sem brot gegn Sharíalögunum. Fallist var á þessa kröfu og var Anojan dæmdur til dauða í framhaldinu.
Á miðvikudaginn var tilkynnt að dómurinn hefði verið felldur úr gildi og þökkuðu yfirvöld á Sri Lanka stjórnvöldum í Sádí-Arabíu fyrir.