Suðurkóresk yfirvöld íhuga nú að draga úr eða jafnvel hætta að veita íþróttafólki, sem vinnur til gullverðlauna á alþjóðlegum stórmótum, undanþágu frá því að gegna herþjónustu.
Umræða um þessar undanþágur fór á mikið flug í Suður-Kóreu nýlega í kjölfar sigurs karlalandsliðsins yfir Japan í úrslitaleik Asíuleikanna. Það voru ummæli nokkurra landsliðsmanna sem kveiktu umræðuna.
Allir leikmennirnir hafa beðist afsökunar á ummælum sínum en það hefur ekki dugað til að lægja öldurnar. Ummæli þeirra voru á þá leið að það hafi ekki verið svo mikilvægt að sigra á leikunum, það hafi verið miklu mikilvægara að tryggja sér undanþágu frá herþjónustu.
Margir hafa spurt hvort þetta sé sanngjarnt og af hverju það sama gildi til dæmis ekki um meðlimi hinnar heimsfrægu og vinsælu hljómsveitar BTS sem skarar fram úr í vinsældum í heimi K-popps.
Samkvæmt suðurkóreskum lögum verða karlmenn að gegna herþjónustu í 18 til 21 mánuð áður en þeir verða 28 ára.