Pressan

Vendingar í Cornell 7-málinu: Einn sjömenningana segist sjálfur vera þolandi

Mynd
Atburðurinn átti sér stað í húsi á lóð Cornell-háskóla, í New York ríki, fyrir tveimur árum en komst fyrst í hámæli nýlega. Mynd: sach1tb. Wikimedia Commons

Bræðralagsmeðlimurinn sem er í miðju ásakana um hópnauðgun í Cornell 7-málinu hélt því fram við yfirmenn háskólans að konan sem sakaði hann og félaga hans um nauðgun, hefði sjálf beitt hann kynferðisofbeldi. Þá benda ýmis gögn til þess að bræðalagsmeðlimirnir hafi reynt að koma sér saman um frásögn.

Málið hefur vakið mikla athygli Vestanhafs og hér á landi en þar segir brotaþoli, ung kona sem er fyrrum nemandi við skólann, að sér hafi verið hópnauðgað af sjö bræðalagsmeðlimum í október árið 2024 í húsi bræðrafélagsins Chi Phi sem er á lóð skólans. Konan lagði fram kæru en saksóknaraembættið á svæðinu lét málið niður falla þar sem það þótti ekki líklegt til sakfellingar. Er hún nú að höfða einkamál gegn sjömenningunum. Sjömenningarnir hafa allir neitað því að um nauðgun hafi verið að ræða.

Sjá einnig: Nýjar upplýsingar í hópnauðgunarmálinu óhuggulega þykja renna stoðum undir málflutning brotaþola

Hér á landi hefur málið ýtt kynferðisofbeldi aftur inn í umræðuna en í Kastljósi í gær kom fram að 11 hafi leitað til Stígamóta vegna hópnauðgana í fyrra.

Sjálfur þolandi

Fréttastofan ABC hefur nú komist yfir gögn úr rannsókn Cornell-háskólans þar sem Matthew Ingalls, einn sjömenninganna, segist að hann sjálfur sé fórnarlamb kynferðisofbeldis þar sem þolandinn hafi átt við hann endaþarmsmök. Á sama tíma og Ingalls var að setja fram þessar ásakanir var virkt hópspjall meðal sjömenninganna um að stilla saman frásagnir sínar. 

Mynd
Matthew Ingalls.

Ingalls skrifaði í reiðilegum tölvupósti til yfirmanna Cornell að háskólinn hefði gerst sekur um „kynjamismunun“ og „gildru“ við rannsókn málsins.

„Þið fenguð upplýsingar um að hún hefði haft endaþarmsmök við mig án samþykkis á meðan ég var ófær um að veita samþykki í nóvember og ykkur datt aldrei í hug að upplýsa mig um réttindi mín samkvæmt þessum verklagsreglum sem þolanda þessa ofbeldis?“ skrifaði Ingalls í febrúar 2025 í tölvupósti til skrifstofu Cornell-háskóla. 

„Sú staðreynd að ég þurfti sjálfur að vekja athygli ykkar á þessu núna í febrúar staðfestir minn versta ótta: að þetta ferli sé gegnsýrt af kynjamismunun.“

Tölvupósturinn var sendur þremur mánuðum eftir að konan, sem aðeins er nefnd Jane Doe í einkamáli hennar vegna ásakananna, sakaði Ingalls um að hafa boðið henni í húsnæði bræðralagsins, gefið henni fíkniefni og áfengi og síðan stungið upp á kynlífi þriggja einstaklinga. Að hennar sögn þróaðist það fljótt yfir í að fleiri bræðralagsfélagar komu inn í herbergið hver á fætur öðrum.

Öryggisverðir rannsökuðu málið fyrir hönd skólans

Konan hefur haldið því fram að hún hafi verið of ölvuð og vímuð til að geta veitt samþykki og lýst atvikinu sem nauðgun. Hún greindi öryggisvörðum á háskólasvæðinu, sem sjá meðal annars um að rannsaka mál, frá atvikinu þremur vikum eftir hið meinta brot.

Ingalls hafði einnig neytt mikils áfengis og fíkniefna þetta kvöld. Í framburði Doe frá árinu 2024 kom fram að hann hefði ítrekað sofnað meðan á atvikinu stóð en vaknað aftur og tekið áfram þátt í hinu meinta ofbeldi. Eftir að Doe sakaði hann um nauðgun reyndi Ingalls að vísa til eigin vímuástands til að halda því fram að hann hefði sjálfur verið þolandinn þetta kvöld, samkvæmt rannsóknargögnum Cornell.

Ný skilaboð komin í dagsljósið

Nafnlaus heimildarmaður sagði öryggisvörðum að stjórnendur Chi Phi hefðu boðað til fundar til að tryggja að frásagnir allra væru samræmdar. Hluti þeirrar frásagnar fólst í því að lýsa atburðunum með Doe sem „hópkynlífi sem allir hafi samþykkt“. 

„Chi Phi hélt fund, í rauninni til að tryggja að allir karlmennirnir segðu sömu sögu um það sem gerðist,“ sagði nemandi við öryggisverðina. „Ég veit fyrir víst að til eru hópskilaboð um málið.“

Félagar í Chi Phi höfnuðu því en skilaboð milli Ingalls og stjórnenda bræðralagsins bentu þó til annars.

„Hvenær talaðirðu síðast við [Doe]?“ skrifaði forseti Chi Phi til Ingalls á einum tímapunkti.

„Í gær … hver er aðgerðaáætlunin?“ svaraði Ingalls. „Á ég að hringja í [hana]? Ég held ekki að hún hafi kært þetta.“

Saksóknari með málið aftur til skoðunar

Ingalls var einnig einn þeirra bræðralagsfélaga sem sakaðir voru um að hafa sent skilaboð í sameiginlegan hópspjallþráð bræðralagsins og boðið öðrum að koma og taka þátt í kynlífinu með Doe. Hann á meðal annars að hafa skrifað vinum sínum að þeir ættu að „koma og taka hann fram“, eftir að annar hafði skrifað að „ókeypis píka“ væri í boði.

Mynd
Skilaboðin í málinu. Hefur það verið gagnrýnt að 57 karlmenn hafi fengið skilaboð um málið en enginn hafi aðhafst.

Doe hélt því hins vegar fram að á þessum tímapunkti hefði hún verið í mjög mikilli vímu vegna fíkniefna. Þegar bræðralagsfélagarnir komu hver á fætur öðrum inn í herbergið hafi hún verið orðin ófær um að veita mótspyrnu.

Eftir að hún sakaði mennina um nauðgun ákvað saksóknaraembættið í Tompkins-sýslu að gefa ekki út ákæru. Vísað var til yfirlýsingar sem hún hafði undirritað þar sem hún viðurkenndi að hafa neytt áfengis og fíkniefna af fúsum og frjálsum vilja fyrr um kvöldið. Saksóknari taldi að það þýddi að hún bæri lagalega ábyrgð á ákvörðunum sínum síðar um kvöldið.

Cornell-háskóli vísaði Ingalls og einum öðrum bræðralagsfélaga úr skólanum eftir að innri rannsókn komst að þeirri niðurstöðu að þeir bæru ábyrgð á kynferðisofbeldi. Hinir fimm sem nefndir eru í einkamálinu voru ýmist settir í tímabundið bann frá námi eða sættu öðrum vægari viðurlögum. Saksóknarar hafa hins vegar tekið málið aftur til skoðunar eftir að skilaboðin um „ókeypis píku“ komu fram í einkamálinu.