Tryggingasvik fyrir jafnvirði hundruða milljarða íslenskra króna komu upp í Bretlandi á síðasta ári og þótt svikatilfellunum hafi fækkað lítillega virðast svindlarar í auknum mæli sækjast eftir hærri fjárhæðum.
Samtök breskra tryggingafélaga (ABI) hafa nú tekið saman nokkur þeirra mála sem vöktu mesta athygli á árinu. Þar á meðal er sérkennilegt mál manns sem dæmdur var í 28 mánaða fangelsi eftir að hafa reynt að svíkja fé út úr tryggingafélagi með kröfum vegna verðmætra Lego-setta sem hann hélt fram að hefði verið stolið.
BBC fjallar um þetta.
Maðurinn lagði fram tryggingakröfur hjá Axa á árunum 2021 og 2022 vegna fjölda muna sem hann sagði hafa verið stolið. Auk verðmætra Lego-setta voru þar á meðal MacBook-tölvur, sjónvörp, leikjatölvur og veiðibúnaður.
Rannsókn tryggingasvikadeildar Lundúnalögreglunnar, IFED, leiddi hins vegar annað í ljós. Þegar lögregla gerði húsleit hjá manninum árið 2023 fundust í stofunni á heimili hans Lego-sett sem samsvöruðu þeim sem hann hafði áður tilkynnt stolin.
Maðurinn var að lokum dæmdur í 28 mánaða fangelsi og gert að endurgreiða 14 þúsund pund, um tvær milljónir króna, sem hann hafði fengið greidd út vegna tryggingakrafnanna.
Lego-málið var langt frá því að vera eina óvenjulega tryggingasvindlið sem komst upp. ABI nefnir einnig mann sem fékk konur sem hann kynntist á stefnumótasíðum til að taka þátt í sviðsettum bílslysum. Hann var dæmdur í 20 mánaða fangelsi.
Annar maður fékk fjögurra og hálfs árs fangelsisdóm eftir að hafa lagt fram falskar ferðatryggingakröfur fyrir meira en 300 þúsund pund vegna meintra neyðartilvika sem kölluðu á læknismeðferð.
Tölur ABI sýna að þótt uppgötvuðum tryggingasvikum hafi fækkað lítillega hafa fjárhæðirnar sem svindlarar sækjast eftir hækkað.
Mark Allen, yfirmaður svika- og fjármálaglæpamála hjá ABI, varar við því að aukið aðgengi að nýrri tækni, þar á meðal gervigreind, geti skapað ný tækifæri fyrir svindlara.
Simon Klust, yfirmaður IFED, segir tryggingasvik ekki vera fórnarlambslausa glæpi enda falli kostnaðurinn á endanum á heiðarlega viðskiptavini í formi hærri iðgjalda.