Pressan

Sérfræðingar vara við nýrri hryðjuverkaógn í háloftunum

Mynd
Miri telur að flugmenn sem aðhyllast öfgahyggju gætu verið ný ógn þegar kemur að hryðjuverkum.

Fyrrverandi háttsettur yfirmaður í ísraelska hernum óttast að atvik um borð í farþegaþotu Flydubai á dögunum kunni að vera fyrirboði um nýja og sérstaklega óhugnanlega aðferð hryðjuverkamanna.

Í stað þess að ræna flugvélum gætu hryðjuverkasamtök reynt að snúa flugmönnunum sjálfum á sitt band og fá þá til að granda eigin vélum.

Miri Eisin, fyrrverandi ofursti og leyniþjónustufulltrúi í ísraelska hernum, telur að flugmenn sem aðhyllast öfgahyggju gætu verið ný ógn þegar kemur að hryðjuverkum. New York Post skýrir frá þessu. 

Varð fyrir áhrifum öfgahyggju

Tilefni ummæla hennar er atvik um borð í flugvél Flydubai á dögunum með 174 farþega innaborðs, þar á meðal Ísraela. Flugmaður vélarinnar, sem er frá Óman, réðst þá að flugstjóranum og reyndi að granda vélinni. Aðrir farþegar gripu sem betur fer inn í og tókst þeim að yfirbuga manninn.

Wall Street Journal hefur greint frá því að flugmanninum, Hamam al-Hammami, hefði áður verið bannað að fljúga í Óman vegna gruns um að hann hefði orðið fyrir áhrifum öfgahyggju. Þá hefur komið fram að hann hafi ætlað sér að granda vélinni á Ben Gurion-flugvelli í Tel Aviv með tilheyrandi manntjóni og hörmungum.

Eisin segir atvikið vekja upp spurningar um hvort hryðjuverkasamtök eða ríki sem styðja þau kunni að reyna að nýta sér starfandi flugmenn til árása líkt og í þessu tilfelli.

„Ef við lítum til fyrri flugrána, þar á meðal árásanna 11. september, voru það ekki flugmenn vélanna sjálfra sem stóðu að baki. Þetta gæti verið ný tegund sjálfsmorðsárása,“ segir Eisin.

Hún segist strax hafa velt fyrir sér hvort Íran hefði mögulega tengst málinu, jafnvel Quds-sveit íranska byltingarvarðliðsins eða Hezbollah í Líbanon. Eisin tekur þó skýrt fram að hún hafi engar beinar sannanir og bendir á að rannsókn málsins sé enn í gangi.

Flókið og tímafrekt

Oded Ailam, fyrrverandi háttsettur yfirmaður hjá ísraelsku leyniþjónustunni Mossad, segir hins vegar að það væri flókið og tímafrekt að fá atvinnuflugmann til að fremja slíka árás.

Hann segir þó að önnur hætta kunni að vera fyrir hendi. Flugmenn geti, rétt eins og aðrir, orðið fyrir áhrifum öfgafulls áróðurs á netinu eða annars staðar án þess að vera formlega meðlimir hryðjuverkasamtaka.

Ailam segir að einstaklingar sem aðhyllast öfgahyggju upp á eigin spýtur geti orðið fyrir miklum áhrifum frá áróðri og öðrum öfgamönnum.

Að hans mati gætu slíkir einstaklingar jafnvel reynst erfiðari viðureignar en skipulagðar hryðjuverkahreyfingar, enda mun erfiðara að bera kennsl á ógnina áður en ráðist er til atlögu.

Ailam telur því líklegt að atvikið um borð í Flydubai-vélinni verði til þess að flugfélög og stjórnvöld endurskoði öryggisráðstafanir sem komið var á eftir hryðjuverkaárásirnar í Bandaríkjunum 11. september 2001.

Hann telur að flugfélög gætu þurft að innleiða tæknilausnir sem geri öðrum úr áhöfninni kleift að komast inn í stjórnklefann ef flugmaður reynir að granda vélinni.

„Það er ómögulegt að skima hvern einasta flugmann,“ segir Ailam. „Lausnin verður að vera tæknilegs eðlis.“