Pressan

Óhugnanleg innbrot hjá finnskum þingmönnum – Ógeðfelld sjón beið eins þingmanns

Mynd

Dularfull innbrot á heimili fjölmargra finnskra þingmanna eru nú til rannsóknar en grunsemdir eru uppi um að rússneska leyniþjónustan kunni að standa að baki þeim.

DV greindi frá málinu síðastliðinn fimmtudag og síðan þá hefur málið undið upp á sig.

Að minnsta kosti 20 þingmenn hafa greint frá óútskýrðum innbrotum og í einu tilviki beið þingmanns heldur ógeðfelld sjón þegar hann kom heim. Þegar hann kíkti ofan í salernið á heimili sínu sá hann þar saur sem einhver hafði skilið eftir.

Daily Mail greinir frá málinu og vísar meðal annars til umfjöllunar finnskra fjölmiðla.

Ben Zyskowicz, einn reynslumesti þingmaður Þjóðarbandalagsins, mið-hægriflokks Petteri Orpo forsætisráðherra, er meðal þeirra sem telja að innbrotin geti verið liður í tilraunum Rússa til að hræða og skapa óöryggi meðal finnskra stjórnmálamanna.

„Þetta er leið fyrir rússnesku leyniþjónustuna til að sýna fólki að fylgst sé með því, leið til að skapa óvissu eða ótta,“ segir Zyskowicz.

Gamalkunn aðferð

Jussi Halla-aho, forseti finnska þingsins, hefur staðfest að málið verði rannsakað og segir fjölda tilvikanna „umtalsverðan“.

Grunsemdir um að rússneska leyniþjónustan kunni að tengjast málinu byggjast meðal annars á því að sambærilegum aðferðum hefur verið lýst áður.

Bandaríska utanríkisráðuneytið hefur á árum áður greint frá innbrotum þar sem talið var að rússneskir útsendarar hefðu farið inn á heimili fólks, fært til eigur og opnað glugga. Tilgangurinn hafi ekki verið að stela verðmætum heldur að láta viðkomandi vita að hægt væri að komast inn á heimili þeirra og skapa þannig ótta.

Sarah Rainsford, fyrrverandi fréttaritari BBC í Rússlandi, lýsti einnig sérkennilegu atviki í endurminningabók sinni, Goodbye to Russia. Þar sagði hún að menn hefðu farið inn á heimili hennar og skilið eftir saur í salernum án þess að sturta niður.

Luke Harding, blaðamaður Guardian og fyrrverandi fréttaritari í Moskvu, hefur sömuleiðis lýst því að starfsmenn rússnesku öryggisþjónustunnar FSB hafi farið inn í íbúð hans. Í eitt skipti hafi þeir skilið eftir sig handbók um kynlíf.

Finnar á varðbergi

Málið kemur upp á viðkvæmum tíma í Finnlandi. Landið gekk í Atlantshafsbandalagið árið 2023 og við það lengdust landamæri NATO að Rússlandi um rúmlega 1.300 kílómetra.

Þingkosningar eru jafnframt fram undan í Finnlandi og eru yfirvöld sögð vera sérstaklega á varðbergi gagnvart mögulegum tilraunum Rússa til skemmdarverka, ógnana eða annarra afskipta. Athygli hefur vakið að innbrotin á heimili þingmannanna virðast ekki bundin við ákveðna flokka og þá hafa bæði karlkyns og kvenkyns þingmenn orðið fyrir barðinu á þeim.