Donald Trump fer sjaldnast leynt með markmið sín og metnað og eitt er það sem hann óskar sér allra mest – Friðarverðlaun Nóbels.
Trump hefur lengi skammast yfir að hann hafi ekki fengið þessi merku verðlaun og nú gæti þessi martröð hans orðið enn verri. Margt bendir nefnilega til að verðlaunin geti endað í höndum stærsta pólitíska keppinautar hans.
Það er Mark Carney, forsætisráðherra Kanada, sem þykir líklegur til að hreppa verðlaunin miðað það sem veðbankar telja. Þetta vekur enga gleði í Hvíta húsinu því þjóðarleiðtogarnir tveir eru svo sannarlega engir perluvinir. Samband þeirra er botnfrosið þessa dagana vegna viðskiptastríðs landanna sem Trump hratt af stað. Það hefur ekki verið til bóta að Trump hefur reynt að breyta nafni Lake Ontatio í Lake America og hefur þess utan hefur hann ögrað Kanadabúum með því að tala um Kanada sem verðandi 51. ríki Bandaríkjanna.
The Independent skýrir frá þessu.
Carney lætur hinn háværa nágranna sinn ekki eiga neitt inni hjá sér og hefur látið Trump hafa það óþvegið og gagnrýnt hann harkalega.
Trump var mjög svekktur á síðasta ári þegar hann fékk Friðarverðlaunin ekki því hann taldi sig hafa leikið stórt hlutverk við að koma á friði í heiminum.
„Ég batt enda á átta stríð. Fékk ég Nóbelsverðlaunin? Nei,“ sagði hann.
Það bætir ekki úr skák fyrir Trump að Barack Obama, sem virðist vera mjög ofarlega í huga Trump, fékk Friðarverðlaunin þegar hann gegndi forsetaembættinu. Fáum dylst að Trump er mjög í nöp við Obama og Friðarverðlaunin hans nudda enn meira salti í sárið.