Pressan

14 ára stúlka og faðir hennar fundin í Mexíkó – Óhugnanlegt mál rannsakað

Mynd
Lögregla hefur handsamað Perez og komið unglingsdóttur hans í öruggt skjól.

Fjórtán ára stúlka frá Kaliforníu, sem leitað hefur verið að í tæpan mánuð, er fundin heil á húfi í Mexíkó. Faðir hennar hefur verið handtekinn en hann er grunaður um að hafa beitt dóttur sína kynferðislegu ofbeldi og gert hana barnshafandi.

Málið er afar óhugnanlegt og hófst rannsókn þess eftir að lík nýfædds barns fannst við vegkant í Monterey-sýslu í Kaliforníu þann 1. ágúst síðastliðinn. NBC News greinir frá málinu.

Lík nýbura fannst við vegkant

Ekki hefur verið upplýst um nákvæma dánarorsök barnsins en að sögn lögreglu báru líkamsleifar þess merki um áverka. Yfirvöld gáfu barninu nafnið „Baby Angelita“ meðan á rannsókn málsins stóð.

Í frétt NBC kemur fram að rannsóknin hafi beint lögreglu á slóðir hins 38 ára Sergio Galvez Perez og 14 ára dóttur hans. Lögregla telur að stúlkan hafi orðið þunguð eftir kynferðislegt ofbeldi föður síns, fætt barnið við vegkant þar sem það var skilið eftir.

Stúlkan talin þolandi

Stúlkunnar og föður hennar var í kjölfarið leitað og gefin út svokölluð Amber Alert-neyðartilkynning vegna hvarfs hennar.

Lögreglan í Monterey-sýslu sagði upphaflega að stúlkunnar væri leitað vegna gruns um morð. Embætti saksóknara steig hins vegar síðar fram og lagði áherslu á að engin ákvörðun hefði verið tekin um ákæru gegn henni. Grunur væri um að hún væri þolandi ofbeldis af hálfu föður síns.

Saksóknarar lögðu jafnframt áherslu á að ábyrgðin á því að koma barni úr hættulegum aðstæðum hvíldi ekki á barninu sjálfu.

Faðirinn handtekinn í Mexíkó

Mexíkósk yfirvöld hafa nú fundið stúlkuna og komið henni í öruggt skjól.

„Hún er örugg og er nú í umsjá yfirvalda í Mexíkó,“ segir Tina Nieto, lögreglufógeti í Monterey-sýslu.

Faðir hennar var einnig handtekinn í Mexíkó, að sögn eftir að fíkniefni fundust í fórum hans. Hann er eftirlýstur í Kaliforníu vegna fjölda alvarlegra sakargifta, meðal annars sifjaspells, kynferðisbrota gegn barni yngra en 14 ára og þess að hafa stofnað barni í hættu.

NBC segir að mexíkósk yfirvöld hafi unnið náið með lögreglunni í Monterey-sýslu og bandarísku alríkislögreglunni, FBI, að því að finna stúlkuna.

Móðir hennar, Ofelia Garcia Ortega, var handtekin í ágúst vegna gruns um að hafa stofnað barni í hættu en var síðar látin laus gegn tryggingu.