Breska blaðakonan Helen Roberts hitti Christu Pike á dauðadeild í Tennessee fyrir tuttugu árum. Hún bjóst við að hitta harða og jafnvel ógnvekjandi konu sem hafði framið hrottalegt morð. Konan sem tók á móti henni hinum megin við fangelsisglerið var hins vegar allt öðruvísi en hún hafði ímyndað sér.
Fundurinn hefur fylgt Roberts allar götur síðan.
„Það var stundum erfitt að tengja konuna sem sat fyrir framan mig við þann hræðilega glæp sem hún hafði framið,“ segir Roberts í samtali við BBC.
„Þetta var eins og um tvær gjörólíkar manneskjur væri að ræða. Ég gat ekki ímyndað mér að konan sem ég hitti hefði getað beitt svona hræðilegu ofbeldi,“ segir hún í viðtalinu.
Bjóst við allt annarri manneskju
Roberts var á miðjum þrítugsaldri þegar hún heimsótti hámarksöryggisfangelsi kvenna í Nashville í desember 2006 fyrir breska tímaritið More. Pike var þá þrítug og hafði setið á dauðadeild í ellefu ár.
Roberts hafði aldrei áður komið inn í fangelsi og viðurkennir að hún hafi verið bæði kvíðin og óörugg. Eftir að hafa farið í gegnum öryggisleit og nokkrar læstar dyr hitti hún Pike loksins hinum megin við glervegg.
Hún kveðst hafa reynt að mæta Pike án fyrirfram gefinna hugmynda, þótt hún hefði búist við mjög harðri og kaldranalegri konu. Sú mynd brast fljótt.
Roberts lýsir Pike sem hlýlegri og ákafri í að geðjast viðmælanda sínum. Hún brosti, flissaði og færði sig fljótlega upp að glugganum sem skildi þær að svo þær gætu verið nær hvor annarri.
„Hún var ekki í vörn, hún var ekki erfið og reyndi ekki að komast hjá spurningum. Hún svaraði öllum spurningum mínum nokkuð skýrt og hreinskilnislega.“
Stundum, segir Roberts, virtist Pike einfaldlega ósköp venjuleg kona.
Ræddi morðið án þess að hika
Það var einmitt þessi hlið á Pike sem Roberts átti erfitt með að tengja við þann hrottalega glæp sem hún hafði framið. Pike var aðeins átján ára árið 1995 þegar hún, þáverandi kærasti hennar Tadaryl Shipp og önnur stúlka lokkuðu hina nítján ára Colleen Slemmer á afvikinn stað. Þar var Slemmer beitt hrottalegu ofbeldi og myrt.
Pike var sakfelld fyrir morðið og dæmd til dauða árið 1996.
Þegar Roberts ræddi við hana ellefu árum síðar hikaði Pike ekki við að tala um morðið. Roberts segir enga sjáanlega breytingu hafa orðið á tilfinningum hennar þegar umræðan barst að því sem gerðist.
Pike lýsti atburðunum af yfirvegun og talaði um átján ára sjálfa sig nánast eins og aðra manneskju. Hún sagðist hafa „misst vitið“ kvöldið sem Slemmer var myrt og upplifað það eins og hún hefði verið utan eigin líkama og einhver annar tekið stjórnina.
Hún sagðist jafnframt sjá mjög eftir því sem hún hafði gert en á sama tíma gera sér grein fyrir því að engin orð gætu bætt fyrir það sem gerðist þetta kvöld.
Átti erfiða æsku
Roberts kynnti sér einnig bakgrunn Pike. Hún ólst upp við mikla vanrækslu og sagði báða foreldra sína hafa glímt við áfengisvanda. Amma hennar hefði verið eina manneskjan sem veitti henni raunverulega ást og þegar hún lést úr krabbameini, þegar Pike var tólf ára, hefði eitthvað brostið innra með henni.
Pike greindi Roberts einnig frá því að hafa orðið fyrir kynferðisofbeldi ellefu ára og aftur sautján ára. „Hún gekk í gegnum ýmis tímabil þar sem hún varð fyrir vanrækslu og ofbeldi,“ sagði Roberts.
Roberts segir þetta þó ekki afsaka morðið. Hún velti hins vegar enn fyrir sér spurningu sem fundurinn vakti hjá henni fyrir tuttugu árum: Hvað hefði gerst ef Pike hefði fengið þá hjálp sem hún þurfti sem barn?
Gat ekki hætt að hugsa um hana
Þessi gamli fundur leitaði sterkt á Roberts þegar aftaka Pike nálgaðist síðastliðinn miðvikudag.
„Allan miðvikudaginn gat ég ekki annað en verið með henni í huganum. Ég hugsaði stöðugt um hvað væri að gerast.“
Hún hafði lesið að Pike hefði hafnað síðustu máltíð sinni og segist ekki geta ímyndað sér hvernig það sé að undirbúa sig fyrir eigin dauða.
Svo bárust tíðindin af því að aftakan hefði mistekist.
Pike lifði af þrátt fyrir að hafa fengið tvo skammta af pentóbarbítali og var flutt alvarlega veik á sjúkrahús.
Roberts segir það hafa verið eins og að „horfa á hryllingsmynd“ að vakna við þær fréttir.
„Ég get ekki skilið þetta. Þetta er hreinlega villimannslegt,“ segir hún.
Hún bendir á þá sérkennilegu þversögn sem fylgdi í kjölfarið: Ríkið hafði reynt að taka Pike af lífi en þegar það mistókst var hún flutt á sjúkrahús þar sem heilbrigðisstarfsfólk reyndi að bjarga lífi hennar.
Sendi henni fiðrildi
Eitt atvik frá fundi þeirra árið 2006 hefur setið sérstaklega í Roberts allar götur síðan.
Skömmu eftir að hún sneri heim barst henni handgert kort frá Pike. Það var úr fjólubláum pappír og í laginu eins og fiðrildi.
Inni í kortinu hafði Pike skrifað:
„Takk fyrir að vera góð við mig. Takk fyrir að koma fram við mig eins og konu.“
Roberts segir þessi orð hafa haft djúp áhrif á sig.
Hún leggur þó áherslu á að með frásögn sinni sé hún á engan hátt að gera lítið úr glæp Pike eða gleyma fórnarlambi hennar.
„Hún átti skilið að vera í fangelsi. Auðvitað. Hún framdi glæp, tók líf annarrar konu og þurfti að sæta refsingu fyrir það.“
En fundurinn fyrir tuttugu árum situr eftir.
„Ég get ekki afneitað konunni sem ég hitti, konunni sem sat fyrir framan mig, hvernig tengsl mynduðust á milli okkar og hvernig hún brást við mér og spurningum mínum.“
„Hún er enn manneskja. Það var útilokað fyrir mig að hitta hana án þess að það hefði áhrif á mig.“
Roberts telur að Pike geri sér fulla grein fyrir því að líf hennar hefði getað orðið allt öðruvísi.
„Ég held að hún viti að hún sóaði lífi sínu. Og ég held að hún viti að hún hefði getað gert eitthvað gott við líf sitt – en hún gerði það ekki.“