Pressan

Lögmaður greinir frá ástandi Christu Pike eftir misheppnaða aftökutilraun

Mynd
Christa Pike (t.v) var dæmd fyrir morðið á Colleen Slemmer.

Christa Pike er enn alvarlega veik á sjúkrahúsi eftir misheppnaða aftökutilraun í Tennessee síðastliðinn miðvikudag. Lögmaður hennar segir óvíst hvort hún muni ná sér að fullu og að enn sé ekki ljóst hvaða langtímaafleiðingar atvikið mun hafa.

Stephen Ferrell, einn lögmanna Pike, ræddi ástand hennar í þættinum State of the Union á CNN í gær. Þar sagði hann hina fimmtugu Pike enn vera í öndunarvél.

„Við vitum í raun ekki hverjar horfurnar eru enn og það gætu liðið nokkrir dagar þar til við vitum meira,“ sagði Ferrell.

Hann sagði mikla óvissu ríkja um framhaldið og sérstaklega hvaða áhrif aftökutilraunin hefði til lengri tíma.

„Ef hún nær sér á annað borð er mögulegt að hún nái sér aldrei að fullu,“ sagði Ferrell. Hann sagði jafnframt óljóst hvaða áhrif þetta hefði á andlegt ástand hennar og hvort hún yrði yfirhöfuð talin hæf til að sæta annarri aftökutilraun.

Pike lifði aftökutilraunina af þrátt fyrir að hafa fengið tvo skammta af pentóbarbítali. Hún missti meðvitund en hélt áfram að anda og var að lokum flutt á sjúkrahús.

Lögmenn hennar hafa lýst því að illa hafi gengið að koma nálum fyrir í handleggjum hennar. Samkvæmt gögnum sem þeir lögðu fyrir dómstól voru báðir handleggir Pike bólgnir og þaktir blöðrum þegar hún kom á sjúkrahúsið. Þeir segja að alls hafi sjö nálum verið stungið í hana meðan á aftökutilrauninni stóð.

Þá segja lögmennirnir að Pike hafi grátið og fundið fyrir verkjum meðan á ferlinu stóð. Hún hafi meðal annars sagt að sér liði eins og handleggurinn væri við það að springa og síðar spurt hvort þetta ætti að gerast með þessum hætti.

Ferrell telur að Bill Lee, ríkisstjóri Tennessee, eigi nú að breyta dauðadómi Pike í lífstíðarfangelsi. Pike hafi þegar þurft að þola það sem hann lýsir sem „kvalafullri tilraun“ til að taka hana af lífi.

Lee hefur stöðvað allar aftökur í Tennessee út árið og fyrirskipað óháða rannsókn á því hvað fór úrskeiðis. Embætti ríkissaksóknara ríkisins hefur tekið undir að nauðsynlegt sé að komast til botns í málinu.

Óvíst er hvort yfirvöld muni síðar gera aðra tilraun til að taka Pike af lífi. Að sögn Ferrell hefur embætti ríkissaksóknara ekki gefið lögmönnum hennar neinar upplýsingar um næstu skref.

Pike var dæmd til dauða árið 1996 fyrir morðið á skólasystur sinni, Colleen Slemmer, árið áður.