Spænska lögreglan, Guardia Civil, rannsakar nú lát manns vegna líkfundar á strönd í bænum Las Galletas sunnarlega á Tenerife. Tilkynnt var um líkið á ströndinni skömmu eftir hádegi á sunnudag.
Canarian Weekly greinir frá.
Dánarorsök mannsins liggur ekki fyrir. Ekki hafa verið gefnar upplýsingar um hvort slys eða eitthvað saknæmt hafi átt sér stað. Er beðið niðurstöðu rannsóknar varðandi birtingu á frekari upplýsingar um andlát mannsins.
Ennfremur hafa ekki verið gefnar út upplýsingar um aldur eða þjóðerni hins látna.