Pressan

Dularfullt dauðsfall vekur óhug – Gripið til umfangsmikilla sóttvarna

Mynd
Darya Shipilova.

Rússnesk yfirvöld hafa gripið til umfangsmikilla sóttvarnaraðgerða eftir að 28 ára kona, sem starfaði á rannsóknarstofnun í Síberíu sem sérhæfir sig í hættulegum smitsjúkdómum, lést úr dularfullum veikindum.

Konan, Darya Shipilova, starfaði sem rannsóknarstofutæknir við Irkutsk-rannsóknarstofnunina í bænum Shelekhov. Þar eru meðal annars stundaðar rannsóknir á plágusjúkdómum og öðrum alvarlegum bakteríu- og veirusýkingum.

Konan lést eftir að hafa greinst með lungnabólgu af „óþekktum“ uppruna. CNN greinir frá málinu.

Sjúkrahús sett í sóttkví

Maxim Modin, yfirmaður Shelekhovsky-héraðs, segir að gripið hafi verið til umfangsmikilla sóttvarnaraðgerða vegna málsins.

Legudeild sjúkrahússins þar sem konan var til meðferðar hefur verið sett í sóttkví og nokkrar deildir hafa tímabundið hætt að taka við nýjum sjúklingum og útskrifa aðra. Rússneskir fjölmiðlar hafa jafnframt greint frá lokunum á öðrum sjúkrahúsum á svæðinu.

Óháði svæðismiðillinn Liudi Baikala segir að hátt í 200 manns séu undir eftirliti. Þeir sem konan hafði verið í samskiptum við skömmu fyrir andlátið eru nú rannsakaðir og skimaðir.

Rússneska sóttvarnastofnunin Rospotrebnadzor segir þó að ekkert þeirra smitefna sem konan vann með á rannsóknarstofunni hafi greinst í sýnum úr henni. Þá hafa engin tilfelli smitsjúkdóma greinst meðal starfsfólks rannsóknarstofnunarinnar undanfarna tíu daga.

Óvíst hvað dró konuna til bana

Enn liggur ekki fyrir hvað dró konuna til dauða og er það til rannsóknar. Ljóst er þó að yfirvöld taka enga áhættu í ljósi þess við hvað konan starfaði.

Alexei Tsydenov, leiðtogi nágrannahéraðsins Búrjatíu, vakti þó athygli þegar hann sagði að konan hefði „hugsanlega látist af völdum plágu“.

Gennady Onishchenko, fyrrverandi yfirmaður Rospotrebnadzor, telur hins vegar líklegast að um eitthvað annað sé að ræða. Hann sagði við rússnesku ríkisfréttastofuna TASS að sýkingin væri „líklegast ekki lungnaplága“ og bætti við að jafnvel þótt hún yrði staðfest væri ekki búist við útbreiðslu hugsanlegs sjúkdóms.

Bandarísk yfirvöld fylgjast einnig með málinu. Talsmaður bandaríska utanríkisráðuneytisins sagði CNN að mörg atriði væru enn óstaðfest og hvatti rússnesk yfirvöld til að veita réttar upplýsingar um stöðuna hratt og með opnum hætti.