Pressan

Bað áhrifavalda að fjalla um morð foreldranna því það væri „sjúklega áhugavert“ - Síðan var hún handtekin

Mynd

Fimm ára stúlka í Georgíu, Bandaríkjunum, kom að foreldrum sínum látnum í febrúar á síðasta ári. Bæði Kristin og James Brock höfðu verið skotin til bana í svefni. Á heimilinu var einnig Sarah Grace Patrick, tæplega 17 ára dóttir Kristin úr fyrra sambandi, og hringdi hún í Neyðarlínuna til að tilkynna morðin.

Mánuðum saman leitaði lögregla morðingjanna. Hver hafði ástæðu til að brjótast inn á heimili fjölskyldunnar og bana hjónunum er þau sváfu og gátu enga björg sér veitt? Sarah Grace, eins og margir á hennar aldri, var mjög virk á samfélagsmiðlinum TikTok. Þar deildi hún myndum af sér grátandi ásamt færslum þar sem hún lýsti harmi sínum og söknuði. Hún deildi fögrum minningarorðum og óskaði eftir stuðningi.

Mynd

Kirkjurækin og lærdómsfús

Sarah Grace var öflugur námsmaður sem tókst að ljúka skyldunámi ári á undan jafnöldrum sínum. Hún var einnig virk í starfi kirkjunnar og mætti reglulega í messu. Allt í allt virtist Sarah Grace vera fyrirmyndarungmenni.

Veturinn leið og svo vorið án þess að málið væri upplýst. Þegar sumarið var hálfnað áttu sér stað óvæntar vendingar. Sarah Grace var handtekin og ákærð fyrir morðið á móður sinni og stjúpföður.

Hún er í dag 18 ára gömul og bíður þess að aðalmeðferð fari fram í máli hennar þar sem hún þarf að svara til saka sem fullorðinn einstaklingur. Hún hefur neitað sök í málinu.

Verjandi Söruh freistaði þess í fyrra að fá hana leysta úr haldi gegn tryggingu og töldu margir að það yrði leikur einn. Sarah sjálf var svo vongóð að hún var brosandi þegar hún var leidd fyrir dómara.

Það bara gæti ekki verið að þessi greinda stúlka hefði gerst sek um þetta voðaverk. Prestur kirkjunnar og fjölskyldumeðlimir vitnuðu um það fyrir dómi að Sarah væri góðhjörtuð og ófær um að gera flugu mein. Eitt vitnið sagði:

„Að meiða einhvern er bara ekki í hennar eðli eða persónu. Hún hefur ávallt verið góðhjörtuð, virðingarfull og einstaklega þolinmóð.“

Mynd

Ákæruvaldið sagðist þó búa yfir töluverðu magni gagna sem sönnuðu sekt unglingsins, þar með talið mikið magn af rafrænum gögnum. Til dæmis benti ákæruvaldið á að Sarah hefði sett sig í samband við áhrifavalda sem búa til efni um sönn sakamál á TikTok, Instagram og YouTube til að biðja þá um að fjalla um morð foreldra hennar sem væri „sjúklega áhugavert“.

Vitni úr fjölskyldu stjúpföður Söruh Grace bað dómara um að læsa stúlkuna inni.

„Ef sakborningurinn er fær um að myrða sína eigin foreldra með svona ofbeldisfullum hætti óttast ég um öryggi mitt og öryggi fjölskyldu minnar og vina,“ sagði systir James Brock og sagði svo við dómarann: „Ég hvet þig til að hafa þetta í huga þegar þú tekur ákvörðun“

Dómari ákvað loks að Sarah yrði í haldi fram að aðalmeðferð enda væri raunveruleg hætta á því að hún myndi flýja saksókn eða reyna að hafa áhrif á lykilvitni í málinu, litlu systur hennar sem kom að foreldrum sínum látnum.

Sjúklega áhugavert morð

Sarah hefur því setið í varðhaldi í rúmt ár, en aðalmeðferð hefur nú ítrekað verið frestað. Áður en hún var handtekin sendi hún skilaboð á TikTok-áhrifavaldinn Allegedly Reportedly:

„Kynnið ykkur Brock-málið. Þau eru foreldrar mínir og öllum að óvörum, á venjulegu fimmtudagskvöldi í febrúar, kom einhver inn í húsið þar sem ég og 5 ára systir mín vorum og skaut foreldra mína og skildi þau eftir í blóði sínu svo ég og systir mín gætum komið að þeim.“

Í öðrum skilaboðum til hlaðvarps mun Sarah hafa tekið fram að umfjöllun um málið væri líkleg til vinsælda. Hún svaraði einnig netverja sem var að velta fyrir sér hvort morðinginn þekkti til Brock-hjónanna. Sarah skrifaði þá: „Alveg klárlega þar sem morðinginn þekkti húsið.“

Annar áhrifavaldur fékk skilaboðin: „Hey, ég var að velta því fyrir mér hvort þú gætir fjallað um morð foreldra minna. Það er sjúklega áhugavert og ég held að áhorfendur þínir myndu elska það.“

Ákæruvaldinu fannst þetta vægast sagt furðuleg hegðun hjá syrgjandi stúlku sem hafði misst foreldra sína. Þótti því að þarna væri Sarah að reyna að stýra því hvernig fjallað yrði um málið og selja hugmyndina um að hún væri syrgjandi dóttir í leit að svörum.

Verjandinn sagði á móti að Sarah hefði hreinlega verið að reyna að skilja þennan hrottalega harmleik og fá svör. Sarah væri unglingur og eins og aðrir unglingar eyddi hún miklum tíma á TikTok þar sem hún hafði sérstaklega áhuga á efni um sönn sakamál. Því væri þetta hennar leið til að vinna úr áfallinu.

Mynd

Fannst framburður ótrúverðugur

Sarah sagði í yfirheyrslu að hún hefði verið sofandi þegar foreldrar hennar voru myrtir. Hún hafi vaknað þegar litla systir hennar byrjaði að öskra. Lögreglu fannst þetta ótrúverðugt. James Brock var með ónýtt hjarta og var að bíða eftir hjartaígræðslu. Til að halda honum á lífi notaðist hann við sérstakt tæki sem sá um að dæla blóði um líkama hans. Þegar þetta tæki bilar fer hávært viðvörunarkerfi í gang og Sarah hafði viðurkennt að hafa heyrt viðvörunarhljóðið áður en hún fór að sofa.

Lögregla velti þessu fyrir sér. Sarah sagðist hafa farið að sofa á miðnætti en heyrt viðvörunarhljóðið tuttugu mínútum fyrr en hafði þó ekki farið að kanna hvort það væri í lagi með stjúpföður hennar. Viðvörunarkerfið virkar þannig að hávaðinn er í samræmi við alvarleika, svo eftir að James lést hefði hávært hljóðið ekki átt að fara fram hjá henni. Lögreglu fannst eins ótrúverðugt að Sarah hefði getað sofið í gegnum sex skothvelli.

Brock-hjónin voru skotin úr návígi og allt bendir til þess að þau hafi ekki rumskað áður en skothríðin hófst. Spurningunni sem er á allra vörum hefur þó ekki enn verið svarað. Hvers vegna ætti Sarah að hafa myrt móður sína og stjúpföður? Eins og áður segir er enn ekki komin dagsetning fyrir aðalmeðferðina eftir að henni var ítrekað frestað. Ákæruvaldið hefur haldið spilunum þétt að sér.

Mynd

Ég vildi að þau væru dauð

Áhugafólk um sönn sakamál hefur þó komið með sínar eigin kenningar út frá þeim gögnum sem þegar hafa verið opinberuð. Sarah var mikill aðdáandi sannra sakamála og vissi því hvaða mistök koma upp um glæpamenn. Hún vissi hvernig morð eru rannsökuð og hverju rannsakendur leita að. Hún hafi því talið sig hafa unnið heimavinnuna nægilega vel til að komast upp með morðið. Sarah hafi ekki verið hrifin af stjúpföður sínum og ósátt við móður sína. Hana langaði að búa með pabba sínum. Sarah sendi á vin áður en morðin áttu sér stað: „Ég vildi að þau væru dauð“ og eins sagðist hún varla geta beðið eftir að losna við foreldra sína.

 Nágranni fjölskyldunnar lýsti því við fjölmiðla að Kristin hafi kvartað undan því að Sarah Grace væri orðin hortug og erfið og heimtað að fá að flytja til föður síns.

Svo eru þeir sem telja að stúlkan sé saklaus, þar með talið faðir hennar og fleiri úr fjölskyldunni. Ákæruvaldið telur sig hafa skothellt mál í höndunum en aðalmeðferð var seinast frestað í byrjun ágúst vegna þess að verjendur töldu sig þurfa tíma til að yfirfara ný sönnunargögn sem saksóknari lagði fram. Á meðan situr Sarah í fangelsi, svolítið eins og köttur Schrödingers þar sem hún er hvorki sek né saklaus.