Nýlega var Santos Maria Chilel Soto, 39 ára, á göngu á akri nærri Ellendale í Delaware í Bandaríkjunum með eiginmanni sínum og tveimur börnum þegar skot glumdi skyndilega.
Skömmu síðar var lögreglan kölluð á vettvang og fundu lögreglumenn Santos illa særða. People skýrir frá þessu.
Hún var strax flutt á sjúkrahús en ekki reyndist unnt að bjarga lífi hennar.
Það var Walter Moorhead, 74 ára veiðimaður frá Maryland, sem skaut Santos.
Hann lá í leyni á jörðinni og beið eftir að komast í færi við hjartardýr þegar hann kom auga á fjölskylduna á akrinum.
Þegar lögreglan yfirheyrði hann sagðist hann hafa skotið á fjölskylduna því hann hafi talið að um hjartardýr væri að ræða. En skotið hæfði Santos og varð henni að bana.
The Guardian segir að þegar þetta gerðist hafi ekki verið heimilt að veiða hjartardýr með riffli í Delaware.
Moorhead hefur verið ákærður fyrir manndráp af gáleysi, fyrir að stofna lífi fólks í hættu og vörslu skotvopns sem var notað við afbrot. Hann gengur laus gegn tryggingu en á allt að 25 ára fangelsi yfir höfði sér.