Dularfullir bílar, undarlegar myndatökur og innbrotstilraunir þar sem engu er stolið. Þetta er meðal þess sem getur bent til að ófyrirleitnir aðilar, jafnvel á vegum erlendra ríkja, séu að verki.
Þú ert heima og tekur eftir bíl sem hefur staðið á sama staðnum dögum saman. Kannski sérðu manneskju sem tekur myndir af fyrirtæki eða svæði sem þú hefur aldrei áður séð neinn sýna áhuga.
Er þetta bara tilviljun ein?
Líklega en miðað við þá stöðu sem er uppi í heimsmálunum í dag þá getur verið þess virði að staldra aðeins við og hugleiða hvað maður sér.
Einhverjir kunna að hugsa með sér að það þurfi nú ekki að hafa miklar áhyggjur af einhverju svona hér á landi en það er ekki hægt að útiloka að erlend öfl, sem vilja Vesturlöndum illt, kunni að grípa til aðgerða hér á landi. Er þá nærtækast að horfa til Rússlands í þessum efnum enda virðast rússneskir ráðamenn vera í vígahug og upp á kant við Vesturlönd.
Danska ríkisútvarpið skýrði nýlega frá því að samkvæmt upplýsingum frá leyniþjónustu dönsku lögreglunnar séu rússneskar leyniþjónustustofnanir að undirbúa skemmdarverk gegn dönskum fyrirtækjum. Þetta á sérstaklega við þau fyrirtæki sem koma að framleiðslu fyrir varnarmálageirann.
Dagblaðið Berlingske benti nýlega á að ósköp venjulegt fólk geti hugsanlega verið ráðið til starfa af Rússum til að taka að sér lítil verkefni. Slík dæmi hafa til dæmis sést í Úkraínu, Bretlandi og Póllandi þar sem Rússar hafa greitt almennum borgurum fyrir að vinna skemmdarverk.
En þetta þýðir ekki að fólk eig að fyllast grunsemdum og gruna allt og alla um græsku. En það er samt sem áður hægt að vera á varðbergi.
Rasmus Dahlberg, lektor í samfélagsvísindum við Hróarskeldu háskóla, sagði að fólk geti haft eitt einfalt atriði í huga: „Veittu því, sem er frábrugðið því sem venjulegt er, athygli.“
Þetta getur til dæmis verið bíll, sem er ítrekað lagt á óvenjulegum stöðum, eða fólk, sem tekur myndir af fyrirtæki, girðingu eða athafnasvæðum.
Annað dæmi getur verið innbrotstilraun þar sem engu er stolið. „Svona tilraun til að komast inn, þar sem ummerki sjást á lásum og girðingum og þess háttar,“ sagði Dahlberg.
Hér er hann ekki að segja að ummerki á lás sé merki um skemmdarverk af hálfu Rússa, það er heildarmyndin sem getur verið áhugaverð.
Hann benti einnig á að erlend öfl geti reynt að fá fólk til að sinna ákveðnum verkefnum og komist í samband við það í gegnum Internetið. Verkefnið getur virst sárasaklaust, til dæmis að taka myndir af ákveðnum stað eða hlut.
Hann sagði að slík verkefni geti í versta falli þróast yfir í stærri og alvarlegri hluti ef fólk segir já.