Nokkrum sekúndum eftir að David Vetter fæddist á Texas Children‘s sjúkrahúsinu í Houston í Bandaríkjunum 1971 var hann settur í sótthreinsaða einangrunarstöð úr plasti. Ástæðan var að hann var með SCID, sem er gríðarlega alvarlegur ónæmisgalli sem gerir að verkum að líkaminn er nær algjörlega ófær um að takast á við sýkingar, líka þær allra minnstu.
Sárasaklaus athöfn á borð við að heilsa með handabandi hefði getað banað honum. David ólst því upp í plastinu. Fjölskylda hans varð alltaf að vera með sótthreinsaða hanska til að geta snert hann.
Bandaríska geimferðastofnunin NASA þróaði sérstakan búning svo hann gæti farið út úr plastinu en um leið notið verndar fyrir umheiminum.
David í búningnum sem NASA gerði fyrir hann.
Þegar hann var 12 ára gekkst hann undir beinmergsskipti þegar hann fékk beinmerg úr systur sinni. Þetta var besta vonin sem vísindin gátu boðið honum upp á. En í beinmergnum leyndist Epstein-Barr-veira sem læknarnir fundu ekki. Hún varð til þess að David fékk eitlakrabbamein sem dró hann til dauða 1984 þegar hann var á þrettánda aldursári.
Þá gat móðir hans faðmað hann í fyrsta og eina skiptið án þess að vera með hanska. Þetta gerðist þegar hann átti stutt eftir ólifað og læknarnir ákváðu að taka hann út úr plastinu.
Saga David vakti upp mikilvægar siðfræðilegar spurningar sem enn eru ræddar: Hvenær er réttlætanlegt að halda fólki á lífi ef það getur ekki lifað lífinu eins og fólk á að geta? Hvað skulda vísindin þeim sem þau gera tilraunir á?
Stutt líf David lagði mikið af mörkum til framfara hvað varðar þróun ónæmisfræði og ígræðslulyfja.