„Ég er sérstaklega hræddur við næstu þrjú ár,“ sagði Ståle Ulriksen, lektor við norska varnarmálaskólann, í samtali við Dagbladet og átti þar við hættuna á að ný heimsstyrjöld brjótist út.
Hann óttast að sérstaklega einn atburður geti hrundið heimsstyrjöld af stað. Þetta er ef Kína ræðst á Taívan.
„Það eru 50% líkur á að einhverju sem líkist heimsstyrjöld á næstu árum,“ sagði hann og átti þar við bein átök á milli Vesturlanda, með NATÓ og Bandaríkin í fararbroddi, annars vegar og Rússlands og/eða Kína hins vegar.
Einræðisstjórnin í Peking, með Xi Jinping forseta í fararbroddi, hefur ekki farið leynt með þá skoðun að Taívan sé hluti af Kína og útilokar ekki að hervaldi verði beitt til að ná yfirráðum á eyjunni sem er sjálfstætt lýðræðisríki.
Kínverjar hafa beitt Taívan miklum þrýstingi, bæði diplómatískum, pólitískum og hernaðarlegum. Meðal annars hafa Kínverjar hvað eftir annað haldið stórar heræfingar mjög nærri Taívan.
Ef Kínverjar ráðast á Taívan, geta viðbrögð Bandaríkjanna valdið keðjuverkun að sögn Ulriksen og getur hún haft áhrif í Evrópu. Slík árás myndi vera vatn á myllu Vladímír Pútíns.
Ef Bandaríkjamenn myndu taka þá ákvörðun að verja Taívan, myndi það kalla á gríðarlegan herafla af þeirra hálfu og þá myndi Evrópa standa eftir berskjaldaðri en áður.
Mörg Evrópuríki hófust handa við að efla herafla sinn í kjölfar innrásar Rússa í Úkraínu 2022 en mörg ríki höfðu látið varnarmálin sitja á hakanum árum saman og því mun það taka þau langan tíma að byggja heri sína upp.
Ulriksen sagði að Evrópuríkin verði ekki í stakk búin til að takast á við Rússland á vígvellinum án utanaðkomandi hjálpar fyrr en á milli 2030 og 2035 og það viti Pútín mætavel.
„Ef stríð brýst út á Taívan og Bandaríkjamenn taka þátt í því, þá opnast möguleikinn á allt annarri stöðu í Evrópu. Ef Rússar vilja ná Narva (sem er eistneskur bær við rússnesku landamærin, innsk. blaðamanns) eða hluta af Lettland, þá veit Pútín að Þýskaland og Pólland verða miklu öflugri ef hann bíður í tíu ár,“ sagði Ulriksen.