NATÓ er með mikla yfirburði yfir Rússa í Eystrasalti en Rússar geta nýtt sér dýrkeypta reynslu sína úr Svartahafi til að hafa áhrif á valdajafnvægið.
Rússneski flotinn er veikburða í Eystrasalti og í Svartahafi hafa Úkraínumenn niðurlægt rússneska flotann. Þetta hefur gert að verkum að Eystrasalt er mikilvægara en áður fyrir olíu- og kornútflutning Rússa.
Breska hugveitan IISS telur að til langs tíma litið geti Rússar valdið alvarlegum óróleika í Eystrasalti með því að nota dróna, tundurdufl, flugskeyti og skemmdarverk.
Úkraínumenn eiga mjög lítinn herskipaflota en samt sem áður hefur þeim tekist að niðurlægja rússneska Svartahafsflotann. Þeir sökktu flaggskipi hans, Moskvu, 2022 og eftir það hafa þeir hæft nýja flaggskipið, Makarov aðmírál, kafbát í þurrkví og fjölda landgöngufarartækja.
Talið er að þriðjungur Svartahafsflotans sé sokkinn eða ekki orustufær. Rússar hafa neyðst til að færa skip sín úr höfninni í Sevastopol á Krím en hún hefur verið krúnudjásn Rússa í Svartahafi.
Staðan er ekki miklu betri í Eystrasalti þar sem rússnesk herskip eru gerð út frá St. Pétursborg og Kalíningrad, sem er landsvæði á milli Póllands og Litháen. Eru Rússar umkringdir NATÓ-ríkjum þarna á svæðinu og standa bandalaginu langt að baki hvað varðar skipakost og flugher.
„Rússar skilgreina Kalíningrad sem „ósökkvandi flugmóðurskip“ en út frá hreinu hernaðarlegu sjónarmiði er erfitt að verja Kalíningrad,“ segir sagnfræðingurinn Daniel Peris í grein á vefmiðlinum Engelbergs Ideas.