Heitur kaffibolli eða tebolli er fastur hluti af hinu daglega lífi margra. En það getur verið góð hugmynd að láta bollann bíða aðeins lengur á borðinu áður en fyrsti sopinn er drukkinn.
The Guardian segir að niðurstöður stórrar nýrrar breskrar rannsóknar bendi til að tengsl séu á milli neyslu mjög heitra drykkja og ákveðinnar tegundar krabbameins í vélinda.
Þátttakendur, sem sögðust drekka „mjög heitt“ frekar en „heitt“ reyndust vera þrisvar sinnum líklegri til að fá flöguþekjukrabbamein í vélinda.
Vísindamennirnir fundu ekki tengsl á milli neyslu mjög heits kaffis og tes og kirtilkrabbameins í vélinda.
Rannsóknin byggði á upplýsingum um tæplega 980.000 Breta sem fylgst var með í 14 ár. Rannsakendurnir segja þetta stærstu rannsóknina af þessu tagi til þessa.
Þátttakendurnir lögðu sjálfir mat á hvort drykkir þeirra væru venjulega mjög heitir, heitir eða volgir. Rannsakendurnir vissu því ekki nákvæmt hitastig þeirra.
Rannsóknin leiddi einnig í ljós að magnið getur skipt máli. Manneskja, sem drakk minnst sex heita drykki daglega, var 71% líklegri til að fá kirtilkrabbamein en manneskja sem drakk færri en sex heita drykki.
Fyrri rannsóknir hafa einnig leitt í ljós tengsl á milli drykkju heitra drykkja og krabbameins í vélinda.