Pressan

Krabbameinslæknir varar við vinsælli mjólk

Mynd
Möndlumjólk. Mynd/SimpleVeganBlog.com

Á síðustu árum hafa margir skipt hefðbundinni kúamjólk út með plöntumjólk á borð við hafra-, soja- eða möndlumjólk. Hún er notuð eins og hefðbundin mjólk, til dæmis út í kaffið eða út á morgunkornið.

Margir hafa skipt yfir í þessar tegundir á grunni dýraverndarsjónarmiða og aðrir vilja temja sér hollari neysluvenjur.

En það eru ekki allir vísindamenn sannfærðir um að þessar tegundir séu betri fyrir fólk en kúamjólk. Þeir segja að sumar af þessum mjólkurtegundum geti innihaldið efni og viðbætt efni sem fólk þarf að hafa meira í huga en það gerir nú.

Þeir benda einnig á að margir neytendur telji sjálfkrafa að vörur úr jurtaríkinu sé hollari kostur en vörur úr dýraríkinu. Sosialnytt skýrir frá þessu.

Maria Abreu, læknir sem vinnur við krabbameinsrannsóknir, sagði í samtali við 7News í Miami að sumar tegundir plöntumjólkur geti verið vafasamar því þær séu ofurunnar matvörur.

Hún telur að ákveðin efni og viðbætt efni geti haft áhrif á náttúrulegt jafnvægi þarmanna og í versta falli valdið krónískum bólgum.

„Þessar vörur virðast vera hollar en í raun eru þær ofurunnar og geta raskað jafnvæginu í þörmunum,“ sagði hún.

Sérfræðingar leggja áherslu á að það sé ekki afgerandi þótt fólk drekki eitt glas af plöntumjólk. Boðskapur þeirra er frekar að fólk þarf að vera meðvitað um innihaldið í þessum drykkjum og ekki taka því sem sjálfgefnum hlut að vörur úr plönturíkinu séu hollari en aðrar.

Val á mjólk snýst því ekki aðeins um hvað er búið að taka úr henni, heldur einnig hverju er búið að bæta í hana.