Pressan

Hugveita segir þetta ástæðuna fyrir að Pútín vill ráðast á Evrópu

Mynd
Pútín er mjög uppsigað við Evrópu og NATÓ.

Rússar hafa að undanförnu staðið fyrir ýmsum fjölþátta árásum á Evrópuríki og það er ekki að ástæðulausu að þeir gera þetta.

Í nýrri greiningu bandarísku hugveitunnar The Institute for the Study of War kemur fram að þessar árásir hafi verið samstilltar og fyrirfram ákveðnar og að þær þjóni ákveðnum langtímahagsmunum Kremlverja.

Í greiningunni kemur fram að tvær meginástæður, að minnsta kosti, séu að baki hegðunar Rússa að undanförnu.

Önnur er að Rússar vilja veikja eða losna alveg við þann hernaðarlega og diplómatíska stuðning sem Evrópuríki veita Úkraínu.

Hin er að þeir vilja gera út af við NATÓ sem sameinað varnarbandalag.

Skýrsluhöfundar segja að ef Rússum tekst þetta geti það haft í för með sér að þeir endurheimti yfirráð sín á því svæði sem áður tilheyrði Sovétríkjunum. Um leið gæti þetta opnað á fjölpóla heimskipan.

Hugveitan segir að margt bendi til að hvoru tveggja eigi við. Eitt dæmi er skemmdarverk á járnbrautum í Póllandi sem koma í veg fyrir að aðstoð komist til Úkraínu og breytir mörkum þess sem NATÓ telur vera eðlilegar árásir Rússa.

Hugveitan slær því föstu að ekki stefni í stríð í hefðbundnum skilningi orðsins á milli Rússa og NATÓ á næstunni. Telur hugveitan að Evrópuríkin standi nægilega vel til að geta tekist á við þá ógn sem stafar af Rússum nú og bendir á að Rússar hafi ekki getu til að gera stóra innrás í eitthvað Evrópuríki svo lengi sem þeir eru í stríði í Úkraínu og það muni þeir heldur ekki geta fyrst eftir að stríðinu þar lýkur.