Pressan

Harry prins vinnur að nýju verkefni um móður sína – Gæti valdið titringi hjá konungsfjölskyldunni

Mynd
Harry prins. Mynd:EPA

Harry prins er nú að vinna að undirbúningi nýs og mjög tilfinningaríks verkefnis um móður sína, Díönu prinsessu, og herma fregnir að þetta verkefni muni alveg örugglega kalla tár fram hjá mörgum af aðdáendum Díönu um allan heim. Einnig þykir líklegt að þetta muni ekki vekja eintóma gleði innan veggja bresku konungshallarinnar.

Harry, sem er bæði prins og hertogi og fimmti í röðinni að erfðum bresku krúnunnar, er með stórhuga áætlanir um að heiðra móður sína með nýrri og grípandi heimildarmynd. Tilefnið er að á næsta ári verða 30 ár liðin frá því að Díana lést í umferðarslysi í París. Harry vinnur nú að því bak við tjöldin að fá nánustu vini og ættingja Díönu til að koma fram í myndinni. The Sun skýrir frá þessu.

Archewell Productions, framleiðslufyrirtæki í eigu Harry og eiginkonu hans Meghan, mun framleiða myndina og er reiknað með að Netflix muni kaupa sýningarréttinn en þó er ekki talið útilokað að aðrar streymisveitur muni sýna henni áhuga og jafnvel keppa við Netflix um sýningarréttinn.

Ein af lykilpersónunum til að vera með í myndinni er móðurbróðir Harry, Charles Spencer jarl. En tímasetningin gæti ekki verið eldfimari en nú því ekki er langt síðan Spencer gaf út endurminningar sínar. Í þeim ber hann Karl konung, föður Harry, þungum sökum um viðbrögð hans við andláti Díönu.