Pressan

Fyrir eða eftir morgunmatinn? – Tannlæknir segir þetta besta tímann til að tannbursta

Mynd
Það er ekki sama hvenær er tannburstað á morgnana.

Morgunrútínan er vel inngróin í okkur flest. Við förum á fætur og síðan taka morgunverkin við, oft í ákveðinni röð. Eitt af þeim er að bursta tennurnar en í tengslum við tannburstunina að morgni getur sú spurning vaknað hvort það sé betra að tannbursta áður en morgunmaturinn er borðaður eða eftir?

Það er auðvitað mikilvægast að bursta tennurnar tvisvar á dag en það breytir því ekki að það getur skipt máli hvort þær eru burstaðar fyrir eða eftir morgunmat í fyrri burstun dagsins.

Þetta sagði Anni Rønman, varaformaður dönsku tannlæknasamtakanna, í samtali við Danska ríkisútvarpið.  Hún sagði að ráðleggingarnar væru alveg skýrar, það sé best að bursta tennurnar áður en fyrsta máltíð dagsins er innbyrt.

„Ég ráðlegg fólki að bursta tennurnar fyrir morgunmatinn þannig að bakteríur, sem hafa sest á tennurnar um nóttina, séu fjarlægðar,“ sagði hún.

Þegar búið er að fjarlægja bakteríurnar, þá eru tennurnar betur í stakk búnar til að taka við morgunmatnum.

Svo er rétt að hafa í huga að ef þú drekkur djús í morgunmat (eða gosdrykk) þá þarf að gæta sín vel því sýran í þessum drykkjum getur haft áhrif á glerunginn. Ef tannburstað er strax eftir að slíkir drykkir eru innbyrtir, þá er hætta á að glerungurinn skemmist. Það sama á ekki við um kaffi, það er óhætt að drekka það áður en tannburstað er.