Spennan á milli Vesturlanda og Rússlands eykst með degi hverjum og margir sérfræðingar og leyniþjónustustofnanir hafa varað við því að Rússar kunni að láta til skara skríða gegn NATÓ á einhverjum tímapunkti til að láta reyna á samstöðu ríkjanna í varnarbandalaginu.
Eistland, Lettland og Litháen þykja líkleg skotmörk Rússa enda liggja þessi litlu lönd upp að Rússlandi. NATÓ hefur sent fjölda hermanna til ríkjanna til að styrkja varnir þeirra og reyna að fæla Rússa frá því að gera árás, í hvaða formi sem slík árás gæti verið.
Danir eru meðal þeirra ríkja sem hafa sent hermenn til Eystrasaltsríkjanna og nú eru þeir að undirbúa sig undir að til átaka kunni að koma og að danskir hermenn falli í þeim.
Prestar dönsku þjóðkirkjunnar hljóta nú þjálfun í móttöku fallinna hermanna og er unnið út frá því að 10-20 danskir hermenn falli daglega.
Þetta sagði Thomas H. Beck, yfirmaður herpresta danska hersins, í samtali við TV2. Hann sagði að ef til stórstyrjaldar kemur sjái hann fyrir sér að 10-20 danskir hermenn muni falla á verstu dögunum. Það sé því mikilvægt að vera undir slíkt búin og að þetta geti herprestarnir ekki tekist á við einir.
Ef til stórstyrjaldar kemur geta hinir 95 herprestar þjóðkirkjunnar ekki séð einir um útfarir allra fallinna hermanna. Af þeim sökum er nú verið að þjálfa sóknarpresta í slíku. Þeir hljóta þjálfun í að flytja ættingjum hermanna tíðindin um dauða þeirra og hvernig á að taka á móti miklum fjölda fallinna hermanna. Sóknarprestarnir þurfa einnig að öðlast innsýn í „hermenninguna“ og hvað það felur í sér að vera einkennisklæddur hermaður að fara í stríð.