Það getur verið hættulegt að vinna við landbúnað og í byrjun ágúst kom það berlega í ljós á sænskum bóndabæ.
Eldri maður fannst þá látinn á akri í Valdemarsvik sveitarfélaginu í Svíþjóð. Strax var ljóst að hann hafði ekki látist af náttúrulegum orsökum.
Lögreglan telur að kýr hafi orðið honum að bana.
NT skýrir frá þessu og segir að samkvæmt þeim upplýsingum sem lögreglan hafi fengið, þá hafi maður verið á akrinum um leið og kýrnar. Telur lögreglan að kýrnar hafi ráðist á hann.