Donald Trump Bandaríkjaforseti er handviss um að geimverur búi ofan í sjónum, þetta fullyrðir Jack Osbourne, sonur rokkgoðsagnarinnar Ozzy Osbourne heitins. Jack hefur síðustu ár haldið úti hlaðvarpi þar sem hann fer yfir samsæriskenningar tengdum fljúgandi furðuhlutum.
Nú segist hann hafa fengið upplýsingar frá heimildarmanni sem þekkir til innan Hvíta hússins. „Hann er mjög náinn forsetanum, þeir tala saman í hverri viku, og nú spurði hann hvað væri málið með fljúgandi furðuhluti,“ segir Osbourne. „Og Trump svaraði: „Við vitum ekki hvað þeir eru en þeir eru ofan í sjónum“, sem mér finnst mjög áhugavert.“
Vísar Osbourne þar til ýmissa gagna og myndbanda sem stjórnvöld í Bandaríkjunum hafa opinberað á síðustu árum, þar á meðal búnað í herskipinu USS Jackson sem sá eitthvað furðulegt á sveimi fyrir utan strendur Kaliforníu fyrir nokkrum árum. Þá var í fyrra fluttar fréttir af dularfullum hlut sem náðist á upptöku fyrir utan strendur Jemens í fyrra.
Sjá einnig: Ótrúlegt myndband af fljúgandi furðuhlut kom þingmönnum í opna skjöldu
„Ég held að þær séu að fylgjast með okkur. Eins og á Sentinel-eyju, eyjan á Indlandshafi sem er algjörlega einangruð frá umheiminum. Enginn má stíga þar færi, það er fólk sem býr þar og við gerum ekkert nema að hafa auga með þeim. Ég held að það sé eitthvað svipað í gangi hér. Og svo ræna þeir fólki,“ segir Osbourne. Sjálfur er hann ekki alveg sannfærður.
„Hluti af mér trúir en ég reyni alltaf að horfa á hlutina gagnrýnum augum. Þegar öllu er á botninn hvolft þá veit ég ekki hvað er að gerast.“