Pressan

Ferðamaður festi bíl sinn í Dauðadalnum og lést

Mynd
Death Valley þjóðgarðurinn. Mynd/Getty

Franskur ferðamaður lést nýlega í hinum svokallaða Dauðadal í Kaliforníu eftir að hann festi bíl sinn í leðju. Hitinn var 47 gráður þegar þetta gerðist.

Pierre Michel Formosa, 68 ára, var á ferð við annan mann þegar bíllinn festist að sögn þjóðgarðsyfirvalda.

Ferðafélagarnir lögðu af stað gangandi eftir að bíllinn festist og stefndu að Badwater Road, sem er einn aðalvegur þjóðgarðsins, til að fá aðstoð.

En Formosa gafst upp á göngunni eftir tæplega tvo kílómetra. Ferðafélagi hans gat haldið göngunni áfram og komst að veginum og náði að stöðva ökumann sem fór um hann.

Í kjölfarið hófst leit að Formosa. Lík hans fannst nokkrum klukkustundum síðar, rúma 2 km frá Badwater Road.

Þjóðgarðsyfirvöld segja málið skelfilega áminningu um hversu hratt aðstæðurnar í Dauðadal geta breyst og orðið lífshættulegar.