Pressan

Hugh Hefner tilkynnti Jeffrey Epstein ítrekað til FBI

Mynd
Systurnar ásamt Hugh Hefner. Mynd/Getty Images

Ný dómsgögn varpa óvæntu ljósi á þátt Hugh Hefners, stofnanda Playboy, í Epstein-málinu svokallaða.

New York Post greinir frá þessu og segir að í gögnunum komi fram að Hefner hafi ítrekað haft samband við bandarísku alríkislögregluna, FBI, árið 2005. Þetta gerðist eftir að Playboy-fyrirsætan Audra Lynn Christiansen tjáði honum að Jeffrey Epstein hefði nauðgað sér og komið henni á framfæri við annan auðugan mann í kynferðislegum tilgangi.

Upplýsingarnar koma fram í breyttri kæru sem 32 konur, þolendur Epsteins, hafa lagt fram gegn bandaríska ríkinu. Þær saka FBI um að hafa brugðist skyldum sínum með því að bregðast ekki við fjölmörgum ábendingum um kynferðisofbeldi Epsteins, sem sumar ná aftur til ársins 1996.

Christiansen var Playboy-leikfélagi októbermánaðar árið 2003 og bjó í Playboy-setrinu í Beverly Hills þegar hún leitaði til Hefners eftir aðstoð, þá 23 ára gömul.

Samkvæmt kærunni sagði hún Hefner að Epstein hefði nauðgað henni. Hún sagðist einnig hafa verið send til Stanley Ho, milljarðamærings og spilavítakóngs í Makaó sem var gjarnan kallaður „guðfaðir fjárhættuspila“ í Kína. Ho lést árið 2020.

Christiansen taldi Hefner hafa bæði tengsl innan löggæslunnar og næg áhrif til þess að frásögn hennar yrði tekin alvarlega og bað hann því um að hafa samband við yfirvöld fyrir sína hönd.

„Hefner hafði ítrekað samband við FBI fyrir hönd Christiansen til að tilkynna Jeffrey Epstein,“ segir í kærunni.

Þrátt fyrir það segir Christiansen að FBI hafi ekki haft samband við hana vegna málsins fyrr en í október árið 2020, fimmtán árum síðar og rúmu ári eftir dauða Epsteins.

Samkvæmt skýrslu FBI frá þeim tíma sagði hún starfsmönnum stofnunarinnar að umboðsmenn hennar hefðu upphaflega kynnt hana fyrir Epstein eftir að myndir af henni birtust í Playboy.

Jordan Merson, lögmaður þolendanna, gagnrýnir FBI harðlega og segir stofnunina nú reyna að komast hjá ábyrgð með vísan til formsatriða.

„Hvernig er hægt að læra af mistökum ef maður viðurkennir þau ekki?“ sagði hann við New York Post.

FBI fór fram á það í júní að málsókninni yrði vísað frá og hélt meðal annars fram að stofnuninni bæri ekki skylda til að rannsaka hverja einustu ábendingu sem henni bærist. Málið er enn fyrir dómstólum.

Hefner lést árið 2017, níræður að aldri. Eftir dauða hans hafa sjálfur komið fram alvarlegar ásakanir um kynferðisofbeldi hans gegn konum, meðal annars í heimildarþáttunum Secrets of Playboy. Þær ásakanir fóru aldrei fyrir dómstóla.

FBI hefur ekki tjáð sig opinberlega um meintar ábendingar Hefners vegna Epsteins.