Árið 2014 birti lögreglan í Stockton í Bandaríkjunum handtökumynd (e. mugshot) af Jeremy Meeks á Facebook.
Meeks, sem er fæddur í Washington, var handtekinn 18. júní sama ár, grunaður um að hafa verið með skotvopn í fórum sínum. Í febrúar 2015 var hann dæmdur í 27 mánaða fangelsi. Dómarinn fyrirskipaði einnig að Meeks skyldi taka þátt í 500 klukkustunda meðferðaráætlun fangelsismálastofnunarinnar vegna vímuefnaneyslu.
Áður en Meeks var handtekinn árið 2014 hafði hann afplánað níu ára dóm fyrir stórfelldan þjófnað. Hann afplánaði dóminn á árunum 2002 til 2011.
Myndin sem lögreglan deildi af honum árið 2014, þegar Meeks var þrítugur, fór eins og eldur í sinu um netið og fékk hann viðurnefnið „Heitasti glæpamaður heims“ (e. „World´s hottest felon).
Ferill í fyrirsætu- og tískuheiminum
Vegna þessa fékk Meeks fyrirsætusamning þegar hann var látinn laus í mars 2016.
Stuttu eftir að honum var sleppt birti Meeks yfirlýsingu á Instagram þar sem hann sagði: „Ég vil þakka fjölskyldu minni og öllum fyrir allan ykkar kærleika, stuðning og bænir. Ég er yfirbugaður og þakklátur fyrir það sem framundan er. Ég er tilbúinn.“
Og hann stundaði ekki bara fyrirsætustörf, Meeks, sem í dag er 42 ára, er einnig tískuhönnuður og leikari. Árið 2019 gerði hann 15 milljóna dollara samning við Fashion Concept GmbH um að þróa fatalínu.
Tveggja barna faðirinn setti síðan á markað sína aðra línu fyrir Canon Mitchell í janúar 2024.
Meeks hefur leikið í myndum á borð við Secret Society (2021), Dance for Me (2023), Love After Holidays (2024) og Beach Chain (2024).
Hann hefur einnig gefið út ævisögu sína. Í viðtali við PEOPLE áður en bókin kom út sagði Meeks: „Ég er á þeim stað í lífi mínu þar sem ég er afar viðkvæmur og vill segja sögu mína, alla söguna, og vona að fólk geti tengst henni og skilið hvernig ég komst á þann stað sem ég er á í lífi mínu.“
Frægð hans hefur þó verið þyrnum stráð og Meeks hefur glímt við fíkniefnafíkn.
Í þættinum Inside True Crime Podcast fyrr á þessu ári sagði hann: „Önnur barnsmóðir minna átti í erfiðleikum með að ég ætti í erfiðleikum. Hún tók myndband af mér sofandi, öndunin mín var mjög hæg og varir mínar voru að blána og ég var eiginlega að ofskammta í svefni.“
Barnsmóðir hans var þá gengin fjóra mánuði leið. „Svo hún sagði bara: „Ef eitthvað gerist, þá er ekkert sem ég get gert,“ og sem betur fer hringdi hún og fékk aðstoð og lækni á staðinn og það var mjög dýrt, en þeir gáfu mér þá meðferð sem ég þurfti,“ segir Meeks, sem hefur síðan þá eytt þúsundum dollara til að viðhalda edrúmennsku sinni.