Fjölskylda í Kaliforníu fékk heldur óhugnanlega skýringu á dularfullum hljóðum sem virtust koma undan húsinu.
Í ljós kom að óboðinn gestur hafði komið sér fyrir í ónotuðu kjallararými undir húsinu og meðal annars tengt þar viftu við rafmagn hússins.
Charnita Matthews, eiginmaður hennar og fjögur börn þeirra fluttu inn í leiguhúsnæði í Hemet í Suður-Kaliforníu í maí. Ekki leið þó á löngu þar til Matthews fór að gruna að eitthvað undarlegt væri á seyði.
Hún sagði í samtali við sjónvarpsstöðina KTLA að hún hefði ítrekað heyrt einhvers grunsamleg hljóð undir húsinu. Þá virtist hurðum vera skellt aftur í öðrum hlutum hússins þar sem enginn úr fjölskyldunni átti að vera.
Eiginmaður Matthews og mágur hennar, Dangelo Phillips, ákváðu að komast til botns í málinu og fylgdu hljóðinu. Leitin leiddi þá út á pall í bakgarðinum þar sem þeir uppgötvuðu kjallararými undir húsinu sem þau höfðu ekki hugmynd um.
Það sem þeir fundu þar benti til þess að einhver hefði hafst við í rýminu og dvalið þar.
Þar var meðal annars vifta, ýmis hreinsiefni og eitthvað sem virtist líta út eins og tól til fíkniefnaneyslu.
Viðkomandi virtist jafnframt hafa nýtt sér rafmagn hússins. Matthews sagði viftuna hafa verið tengda við rafmagnsinnstungu.
Lögreglunni í Hemet var gert viðvart og lögreglumaður sendur á vettvang. Fjölskyldunni var sagt að hafa samband við lögreglu ef hún sæi einhvern fara inn í rýmið eða hafast þar við.
Eftir að hafa gert ráðstafanir svo ekki væri hægt að komast inn í rýmið með einföldum hætti segir Matthews að hún hafi ekki orðið vör við neinn umgang. Óttinn væri þó enn til staðar.
„Ég er hrædd við að vera ein hér,“ sagði Matthews.
Hún gagnrýndi jafnframt rekstrarfélag húsnæðisins, Pro Management, og sagði fjölskyldunni aldrei hafa verið greint frá því að kjallararými væri undir húsinu.
„Mér finnst að rekstrarfélagið hefði átt að standa sig betur, því ég á fjögur börn og eiginmaður minn ferðast mikið,“ sagði hún.
Matthews sagðist hafa gert fyrirtækinu viðvart en ekki fengið svör. Fulltrúi Pro Management sagði KTLA hins vegar að fyrirtækinu hefði ekki verið kunnugt um aðstæður undir húsinu.