Pressan

Buðu viðskiptavinum að lækka bensínverðið með því að dansa - Sjáðu stórskemmtilegt myndband

Mynd

Það þarf ekkert að hafa mörg orð um það að bensíndropinn er dýr. Bensínsstöðin Sunoco of Halfmoon í Saratogasýslu í New York ákvað að bregða á leik í einn dag, þann 30. júlí og bjóða viðskiptavinum sínum að dansa og fá þannig afslátt af bensíninu.

„Ég sparaði 15 dollara!“ sagði Denise Lapointe, himinlifandi við The Post. Hún er strætóbílstjóri um sextugt og eina konan sem kemur fram í myndbandinu sem hefur fengið yfir 10 milljón áhorf á samfélagsmiðlum.

„Ég dansaði bara við minn eigin takt á meðan ég söng: Ég dansa fyrir afslátt. Ég dansa fyrir afslátt,“ sagði Lapointe. „Ég er bara að vera kjánaleg.“

Viðskiptavinum býðst 20% afsláttur af heildarreikningnum sínum á bensínstöðinni, sem er staðsett um það bil þremur klukkustundum utan við New York borg við þjóðveg NY-146. 

Þar sem bensínverð og matvara hækkar stöðugt þá er afslátturinn kærkominn.

„Það eru svo margir sem eiga í fjárhagserfiðleikum, sérstaklega þeir sem eiga stórar fjölskyldur og eldri borgarar. Allt hjálpar,“ sagði Lapointe, sem erþakklát Sunoco hjá Halfmoon fyrir tækifærið til að spara og dansa. „Þau eru með besta starfsfólkið. Mjög jarðbundin, þau láta viðskiptavini sína finnast þeir velkomnir. Við erum eins og fjölskylda.“

Mynd
Afgreiðsludaman hengir upp afsláttarspjaldið.

Paulina Sirtori, 23 ára, samfélagsmiðlastjóri bensínstöðvarinnar og höfuðpaurinn á bak við afsláttardansinn, segir við The Post að hún, ásamt verslunarstjóranum Evu Marie og öðru starfsfólki, sé ánægð með að geta boðið fastagestum sínum og nýjum viðskiptavinum upp á þessi kjör.

„Markmið okkar er að koma eins vel fram við viðskiptavini og við getum,“ sagði Sirtori, nýútskrifuð frá Syracuse-háskóla, sem nú lætur mikið til sín taka í fyrsta starfi sínu eftir háskólanám. „Algengasta kvörtunin sem við heyrum frá fólki alls staðar er að bensínverð sé einfaldlega of hátt. Þess vegna vildum við gera eitthvað til að draga aðeins úr því.“

Mynd

Með lagi Whitney Houston, I Wanna Dance With Somebody, býður Sirtori viðskiptavini um að hrista annan fótinn í að minnsta kosti 15 sekúndur til að fá afsláttinn.

„Bill, hann var fyrsti dansarinn okkar; hann byrjaði að twerka og fór svo  eins lágt og hann gat,“ sagði Sirtori og hló. „Svo var það Dan, sem eins og lyfti mjöðminni út og sveiflaði höfðinu í hringi og kallaði það Michael Jackson-dansinn sinn.“

@halfmoonsunoco We told our customers if they wanted a discount they had to dance for it… and they did not disappoint 🤣 #sunoco #funnyvideo #dancechallenge ♬ I Wanna Dance with Somebody (Who Loves Me) - Whitney Houston

 Myndskeiðið hefur laðað hóp viðskiptavina að bensínstöðinni og margir eru tilbúnir til að dansa. En Sirtori segir að hún sé hætt að bjóða þetta tilboð og muni brátt kynna nýja leið til að fá afslátt.

„Oftast kemur fólk hingað af nauðsyn, án þess að vilja eyða miklum peningum,“ útskýrði hún og var þögul um upplýsingar um komandi afsláttarkeppnir og gjafir verslunarinnar. „Þannig að alltaf þegar einhver gengur inn um dyrnar viljum við að viðkomandi brosi og skemmti sér vel. Við vildum gleðja fólk á þessum erfiðu tímum.“