Pressan

Umdeildir hanskar á leið í hendur ICE – Geta gefið sársaukafullt rafstuð á augabragði

Mynd
Hanskarnir umdeildu hafa vakið áhyggjur mannréttindasamtaka.

Bandaríska innflytjenda- og tollgæslan, ICE, hyggst verja allt að 20 milljónum dala, jafnvirði um 2,4 milljarða íslenskra króna, í kaup á þúsundum sérstakra hanska sem gera starfsmönnum stofnunarinnar kleift að gefa fólki sársaukafull rafstuð.

Stefnt er að því að hanskarnir verði komnir í hendur starfsmanna fyrir mars á næsta ári, samkvæmt tilkynningu sem bandaríska heimavarnaráðuneytið birti á mánudag.

Hanskarnir nefnast Glove, sem stendur fyrir Generated Low Output Voltage Emitter, og eru framleiddir af fyrirtækinu Compliant Technologies í Kentucky. Þeir hafa áður verið notaðir meðal annars í bandarískum fangelsum, að því er segir í umfjöllun The Guardian.

Við fyrstu sýn virka þeir eins og hefðbundnir vinnuhanskar lögreglumanna. Með því að ýta á rofa er hins vegar hægt að virkja rafbúnað í þeim. Hanskinn þarf þá að komast í beina snertingu við húð einstaklings til að framkalla raförvun og sársauka.

Framleiðandinn segir óþægindin yfirleitt nægja til þess að fá fólk til að hlýða fyrirmælum á innan við þremur sekúndum. Fyrirtækið fullyrðir jafnframt að rafstuðin skilji hvorki eftir brunasár, ör né önnur sjáanleg ummerki.

John Peters, forseti IPICD, stofnunar um forvarnir gegn dauðsföllum í varðhaldi, hefur rannsakað notkun hanskanna og lýsir tilfinningunni sem snöggri og sársaukafullri.

„Áhrifin eru tafarlaus og snörp og þau trufla þig. Ég líki þessu við býflugnastungu,“ segir Peters.

Fyrirhuguð kaup ICE hafa vakið miklar áhyggjur meðal bandarískra mannréttindasamtaka, ekki síst í ljósi gagnrýni sem stofnunin hefur sætt vegna valdbeitingar við framkvæmd hinnar hörðu innflytjendastefnu Donalds Trump Bandaríkjaforseta.

Jenn Rolnick Borchetta hjá bandarísku borgararéttindasamtökunum ACLU segir sérstakt áhyggjuefni hversu auðvelt sé að beita hönskunum án þess að utanaðkomandi verði þess endilega varir.

„ICE hefur síðastliðið ár sýnt þjóðinni að starfsmenn stofnunarinnar eru of fljótir að beita valdi. Nú munu þeir geta gefið rafstuð með því einu að ýta á hnapp, jafnvel án þess að nokkur annar sjái þá gera það,“ segir Borchetta.

Hún segir innleiðingu búnaðar sem geti með svo einföldum hætti valdið miklum sársauka vera „ávísun á skaða fyrir almenning“.