Pressan

Milljónir kílóa af kjöti rotna í sumarhitanum – Íbúar segja ástandið óbærilegt

Mynd
Bruninn varð í júnímánuði en hreinsunarstarf hefur gengið hægt með tilheyrandi óþægindum fyrir íbúa og rekstraraðila. Mynd/Getty

Íbúar Boyle Heights í Los Angeles eru langþreyttir á óbærilegum rotnunarfnyk sem hefur legið yfir hverfinu í nærri tvo mánuði. Milljónir kílóa af kjöti og öðrum matvælum urðu eftir í stóru kælivöruhúsi sem eyðilagðist í eldsvoða í júní og hafa síðan rotnað í sumarhitanum.

Um 39 milljónir kílóa af matvælum voru í vöruhúsinu þegar eldur kom þar upp 17. júní. Þar á meðal var mikið magn af nautakjöti, svínakjöti, alifuglakjöti og sjávarfangi.

Afleiðingarnar hafa verið afar óþægilegar fyrir íbúa og fyrirtæki í nágrenninu. Auk ólyktarinnar hefur gríðarlegur fjöldi flugna herjað á svæðið og íbúar segjast einnig hafa orðið varir við óvenjustórar rottur.

„Þetta lyktar mjög illa, alveg hræðilega illa … svo illa að mann langar að æla,“ segir Mesha, 37 ára öryggisvörður á svæðinu, í samtali við BBC. Hún líkir fnyknum við nálykt.

Viðskiptavinirnir hurfu

Alexis Sicairos, þrítugur eigandi kaffivagnsins Brew Sting, hefur fundið verulega fyrir ástandinu. Hann og kærasta hans voru áður vön því að viðskiptavinir mynduðu röð við vagninn en eftir brunann hefur ásóknin minnkað verulega – og það af augljósum ástæðum.

Kaffivagninum var lokað í tvær vikur eftir brunann en síðan hann opnaði aftur hafa flugur verið stöðugt vandamál. Þá hafa starfsmenn vöruhúsa á svæðinu, sem áður voru stór hluti viðskiptavinahópsins, að mestu horfið.

Mynd

„Við misstum líka viðskiptavini sem vilja ekki vera nálægt lyktinni, reyknum og flugunum. Það er skiljanlegt. En við þurfum áfram að borga reikningana okkar, þannig að við erum enn hér,“ segir Sicairos.

Ástandið er slíkt að vart er hægt að ganga um hverfið án þess að slá frá sér flugur. Í úttekt sem borgaryfirvöld létu framkvæma kom jafnframt fram að úrgangurinn og mikill hiti gætu skapað kjöraðstæður fyrir fjölgun flugutegunda sem geta sýkt opin sár manna og dýra.

Fyrirtækið fær harða gagnrýni

Lineage, fyrirtækið sem rak vöruhúsið, segir um 80 prósent matvælaúrgangsins nú hafa verið fjarlægð. Vegna þess gríðarlega magns af matvælum sem var í vöruhúsinu er hreinsunarstarfið mjög umfangsmikið og fyrirtækið áætlar að kostnaðurinn verði á bilinu 80 til 100 milljónir dala.

Borgaryfirvöld í Los Angeles eru þó langt frá því að vera sátt við framgang mála. Heilbrigðisyfirvöld hafa sektað Lineage um 500 dali á dag vegna óheilnæmra aðstæðna og ónæðis og fyrirtækinu hefur verið gefinn frestur til 13. ágúst til að ljúka hreinsuninni.

Karen Bass, borgarstjóri Los Angeles, gagnrýndi fyrirtækið einnig harðlega í bréfi til hluthafa þess og sagði upplýsingagjöf hafa verið of hæga og gagnsæi takmarkað.

Hún hefur jafnframt stöðvað áform um endurbyggingu vöruhússins þar til tryggt hefur verið að heilsu og öryggi íbúa stafi ekki hætta af.

Lineage segir hreinsunarteymi vinna allan sólarhringinn við að fjarlægja rotnandi matvæli og brak og rífa niður skemmda hluta byggingarinnar. Fyrirtækið segir að eitt helsta forgangsatriðið sé að losa íbúa Boyle Heights loksins við óþefinn sem hefur legið yfir hverfinu frá því í júní.