Bandarískur golfari má þakka fyrir að vera á lífi eftir að eldingu laust niður í hann á golfvelli í Ohio á föstudag. Fyrir ótrúlega tilviljun var hann með símann á lofti þegar eldingunni laust niður og náðist atvikið því á myndband.
Chris Schiavone var í golfi með vinum sínum á Pebble Creek-golfvellinum skammt frá Cincinnati þegar þrumuveður gekk yfir svæðið. Mikil rigning hafði breytt vellinum í drullusvað og golfbíll félaganna festist.
Schiavone tók upp símann og byrjaði að mynda vini sína þar sem þeir reyndu að losa bílinn. Skyndilega laust eldingu niður í handlegg hans og féll hann til jarðar í kjölfarið. Skær blossi sést á myndbandinu á sama tíma.
Schiavone sagði síðar að hann hefði tímabundið misst tilfinningu um allan líkamann eftir höggið og að heyrn hans hefði einnig orðið fyrir áhrifum. Meiðsli hans reyndust þó ekki lífshættuleg og er hann nú á batavegi.
Hann birti myndbandið síðar á samfélagsmiðlum þar sem það hefur vakið gríðarlega athygli og fengið meira en tvær milljónir áhorfa, að því er segir í frétt New York Post.
„Einn á móti milljón, segja þeir,“ skrifaði Schiavone við myndbandið og sagðist vera gríðarlega heppinn og blessaður að vera enn á lífi.
Myndbandið hefur vakið athygli og hafa sumir bent á að það hafi ekki verið góð hugmynd hjá Schiavone að standa undir tré með regnhlíf í þrumuveðrinu.
„Að halda á regnhlíf og standa undir tré í þrumuveðri er álíka slæm hugmynd og að stökkva úr flugvél án fallhlífar,“ skrifaði einn.
Annar sagði að hann hefði strax hugsað, áður en eldingunni laust niður, hvort ekki allir golfarar vissu að þeir ættu aldrei að leita skjóls undir tré í þrumuveðri.
Bandaríska veðurstofan varar sérstaklega við hættunni sem fylgir eldingum á opnum svæðum, golfvöllum þar á meðal. Fólk er hvatt til að leita skjóls innandyra um leið og þruma heyrist og forðast tré og önnur há mannvirki.