Um 2.100 ára gamalt rómverskt skipsflak með hundruð leirkrukkum innanborðs fannst fyrir skemmstu á hafsbotni undan ströndum Sikileyjar. Menningarmálaráðherra Ítalíu segir um einn merkasta neðansjávarfornleifafund síðustu ára að ræða.
The Guardian skýrir frá þessu.
Flakið fannst um fimm kílómetra undan strandbænum Mazara del Vallo og liggur á um 46 metra dýpi. Skipið er um 21 metri að lengd og sex metrar á breidd og er talið að um 500 amfórur, það er leirkrukkur sem Rómverjar til forna notuðu að geyma korn, olíu og vín meðal annars, hafi verið í farmi þess.
„Hjartað í mér stoppaði“
Það voru sjómenn sem komu upplýsingum um flakið til yfirvalda. Í kjölfarið hóf sérsveit ítölsku Carabinieri-lögreglunnar, sem sér um vernd menningarminja, rannsókn á svæðinu með aðstoð kafara og neðansjávarmyndavéla.
Kafararnir Giacomo De Mola og Igor Bisulli voru meðal þeirra sem komu að rannsókninni. De Mola lýsti því á Instagram þegar hann kom fyrst auga á farminn.
„Skyggnið var ekki eins og best verður á kosið en ég synti nær. Og hjartað í mér stoppaði. Fyrir neðan mig blasti við gríðarstór breiða af amfórum,“ sagði hann.
Hann segir upplifunina hafa verið einstaka.
„Þetta er án nokkurs vafa ótrúlegasti fundur lífs míns. Það er erfitt að lýsa því hvernig það er að vera meðal fyrstu mannanna í nærri 20 aldir til að berja þetta augum aftur.”
Getur varpað ljósi á fornar verslunarleiðir
Stærstur hluti farmsins samanstendur af svokölluðum Dressel 1A-amfórum sem voru mikið notaðar til vínflutninga. Slíkar krukkur geta reynst fornleifafræðingum afar mikilvægar við að kortleggja verslunarleiðir milli Ítalíu og annarra svæða við Miðjarðarhafið.
Alessandro Giuli, menningarmálaráðherra Ítalíu, segir fundinn vera einn mikilvægasta neðansjávarfornleifafund síðustu ára.
Frekari rannsóknir verða gerðar á flakinu á næstu mánuðum. Fornleifafræðingar vonast meðal annars til að geta aldursgreint skipið með meiri nákvæmni, komist að því hvaðan farmurinn kom og hvert ferðinni var heitið.
Hafsvæðið umhverfis Sikiley er eitt merkasta svæði Miðjarðarhafsins þegar kemur að neðansjávarfornleifum. Eyjan lá við mikilvægar siglingaleiðir sem tengdu saman Evrópu, Norður-Afríku, Grikkland og Mið-Austurlönd og því er talið að fjöldi fornra skipsflaka leynist enn á hafsbotninum þar.