Kínverjinn Wang Zhuang var 37 ára og hafði nánast gefið upp alla von um að finna sér eiginkonu þegar hann rakst á auglýsingu frá þarlendri hjónabandsmiðlun sem lofaði skjótum árangri.
Wang lét slag standa og ferðaðist til Guiyang í Guizhou-héraði í suðvesturhluta Kína. Þar var honum komið í kynni við nokkrar konur og sú áttunda virtist vera nákvæmlega sú sem hann hafði leitað að.
Hún virtist hógvær og heiðarleg, hafði að sögn aldrei verið gift og átti engin börn. Eftir aðeins nokkur örstutt stefnumót ákvað Wang að ganga að eiga hana.
Greiddi milljónir í brúðarverð
Fyrir íslenska lesendur kann þessi hraði að virðast óvenjulegur en í Kína er löng hefð fyrir því að fjölskylda brúðgumans greiði svokallað brúðarverð til brúðarinnar eða fjölskyldu hennar þegar gengið er í hjónaband. Ekki er um eiginleg kaup á eiginkonu að ræða heldur rótgróna hefð sem getur falið í sér verulegar fjárhæðir.
Á sumum svæðum landsins hefur brúðarverðið orðið sérstaklega hátt vegna mikils kynjahalla og getur reynst fjölskyldum brúðguma þung fjárhagsleg byrði.
Þetta hefur gert mörgum körlum, sérstaklega í minni borgum og dreifbýli, erfitt fyrir að finna sér maka. Hjónabandsmiðlanir hafa nýtt sér eftirspurnina og á síðustu árum hafa svokölluð „leifturhjónabönd“ rutt sér til rúms, þar sem aðeins örfáir dagar geta liðið frá fyrstu kynnum þar til gengið er í hjónaband.
Wang var einn þeirra sem greiddi háar fjárhæðir fyrir slíkan ráðahag. Hann segir að brúðarverðið eitt og sér hafi numið meira en 300 þúsund júönum, rúmum fimm milljónum króna, en þegar brúðkaupsveislan og annar kostnaður var talinn með hafi heildarkostnaðurinn numið 400 til 500 þúsund júönum, eða allt að 8,7 milljónum króna.
Aðeins nokkrum mánuðum eftir brúðkaupið tók hins vegar martröðin við.
„Öll fjölskyldan mín hefur verið lögð í rúst,“ segir Wang í samtali við BBC.
Laug um fortíð sína
Wang komst síðar að því að eiginkona hans hafði logið að honum um stóran hluta fortíðar sinnar. Hún hafði áður starfað sem svokallaður gestgjafi á karókístað, starf sem getur borið töluverðan félagslegan stigma í Kína og felur meðal annars í sér að veita karlkyns viðskiptavinum félagsskap. Þá hafði hún verið gift þrisvar, átti þrjú börn, glímdi við alvarlegan kynsjúkdóm og var stórskuldug. Hún hafði einnig logið til um aldur sinn.
Aðeins nokkrum mánuðum eftir brúðkaupið fóru innheimtumenn að hafa samband vegna skulda eiginkonunnar. Wang varð tortrygginn, skoðaði síma hennar og fann þar gögn sem vörpuðu ljósi á fortíð hennar.
Þegar hann gekk á hana samþykkti hún að skilja við hann en neitaði að endurgreiða brúðarverðið. Þegar Wang sneri sér til hjónabandsmiðlunarinnar var fyrirtækið búið að skella í lás og hreinlega horfið.
30 milljónum fleiri karlar en konur
Í umfjöllun breska ríkisútvarpsins, BBC, kemur fram að mál Wangs sé hluti af stærra vandamáli í Kína þar sem fyrrnefnd „leifturhjónabönd“ hafa færst í aukana.
Áratugalöng „eins barns stefna“ kínverskra stjórnvalda, ásamt sterkri samfélagslegri tilhneigingu til að kjósa syni fremur en dætur, hefur stuðlað að miklu ójafnvægi milli kynjanna. Nú eru um 30 milljónum fleiri karlar en konur í landinu.
Staðan getur verið sérstaklega erfið fyrir einhleypa karla á þrítugs- og fertugsaldri sem búa í smærri borgum og dreifbýli. Þar hafa hjónabandsmiðlanir séð viðskiptatækifæri og bjóða sum fyrirtæki upp á leifturhjónabönd þar sem fólk getur hist og gengið í hjónaband á örfáum dögum.
Vandamálið hefur vakið athygli kínverskra stjórnvalda. Frá janúar 2024 til mars 2025 komu mál 1.546 einstaklinga vegna brota tengdum hjónabandsmiðlunum inn á borð saksóknara. Fimm kínverskar stofnanir hafa nú sameinast um aðgerðir gegn ólöglegri starfsemi í greininni.
Í einu tilviki var hjónabandsmiðlun sökuð um að hafa notað konur af karókístöðum til að lokka 128 karla í gildru og svíkja af þeim samtals meira en 2,5 milljónir júana.
Wang reynir nú að vara aðra við. Hann býr enn í Guiyang og birtir myndbönd á samfélagsmiðlum um reynslu sína á meðan hann berst fyrir skilnaði og reynir að endurheimta peningana sína.
„Þetta hefur tekið næstum tvö ár og ég veit enn ekki hvenær ég get skilið við hana,“ segir Wang. „Ég veit ekki hvenær þetta leysist svo ég geti byrjað að lifa eðlilegu lífi aftur. Þetta virðist engan enda ætla að taka.“