Pressan

Borðaði hráar ostrur og fékk hjartastopp í kjölfarið – Rúmfastur með varanlegan heilaskaða

Mynd
Joe Belgio mun að líkindum þurfa umönnun það sem eftir er. Efst til vinstri er unnusta hans, Melanie Stayer.

Bandaríkjamaðurinn Joe Belgio hefur legið á sjúkrahúsi í meira en ár og glímir við alvarlegan og varanlegan heilaskaða. Fjölskylda hans heldur því fram að rekja megi veikindin til hrárra ostra sem hann borðaði á veitingastað í Illinois.

Belgio, sem er 44 ára fyrrverandi landgönguliði og slökkviliðsmaður, borðaði ostrurnar á Gibsons Steakhouse & Bar í Oak Brook, skammt frá Chicago, þann 30. júní í fyrra.

Hann var þar ásamt unnustu sinni, Melanie Stayer, og fjölskyldu þeirra til að gera sér glaðan dag. Að sögn Stayer hafði parið skömmu áður eignast dótturina Carmelu, sem var þá aðeins fimm mánaða gömul.

„Þetta átti bara að vera afslappaður dagur hjá venjulegum manni á veitingastað þar sem hann vildi fagna lífinu með fjölskyldu sinni. Lífið getur breyst svo hratt,“ sagði Stayer í samtali við ABC 7 Chicago en New York Post fjallar um málið.

Fékk hjartastopp þremur dögum síðar

Þremur dögum eftir máltíðina fékk Belgio hjartastopp og missti meðvitund. Lögmaður hans, Scott O'Sullivan, segir að hann hafi verið án nægilegs súrefnis í að minnsta kosti átta mínútur.

Það voru slökkviliðsmenn í Cicero, fyrrverandi samstarfsmenn Belgio, sem komu honum til bjargar og náðu að endurlífga hann áður en hann var fluttur á sjúkrahús.

Belgio féll í kjölfarið í dá og vaknaði ekki fyrr en nokkrum mánuðum síðar.

Í málshöfðun sem fjölskylda hans hefur nú lagt fram er því haldið fram að ostrurnar hafi verið mengaðar af tveimur tegundum baktería, Enteropathogenic E. coli (EPEC) og Plesiomonas shigelloides. Lögmaður Belgio segir rannsóknir lækna hafa leitt í ljós nokkrar tegundir sýkla í líkama hans.

„Rúmfastur það sem eftir er ævinnar“

Afleiðingarnar hafa verið skelfilegar. Belgio er enn á sjúkrahúsi, rúmfastur og þarf umönnun allan sólarhringinn.

„Hann verður að öllum líkindum rúmfastur það sem eftir er ævinnar,“ segir O'Sullivan. „Hann er með mjög alvarlegan heilaskaða, hefur afar takmarkaða vitræna getu og mun þurfa umönnun til æviloka.“

Sjúkrakostnaður Belgio er samkvæmt CBS News þegar kominn yfir eina milljón Bandaríkjadala. Söfnun hefur verið stofnuð fyrir fjölskylduna og hafa þar safnast meira en 85 þúsund dalir.

Á söfnunarsíðunni er Belgio lýst sem ástríkum föður og manni sem hafi varið stórum hluta ævi sinnar í þjónustu við aðra. Hann gegndi meðal annars herþjónustu í Írak áður en hann hóf störf sem slökkviliðsmaður.

Veitingastaðurinn hafnar ábyrgð

Forsvarsmenn Gibsons Steakhouse & Bar hafna því að sýnt hafi verið fram á að matur frá veitingastaðnum hafi valdið veikindum Belgio. Þeir benda jafnframt á að engin önnur veikindatilvik hafi verið tilkynnt.

„Miðað við þær staðreyndir sem liggja fyrir og okkar eigin rannsókn eru engar vísbendingar um að matur frá veitingastaðnum hafi valdið heilsutjóni hans,“ segir í yfirlýsingu veitingastaðarins sem New York Post vitnar til.

Forsvarsmenn staðarins segjast þess fullvissir að niðurstaða hugsanlegs dómsmáls muni sanna þann málstað. Tveimur fyrirtækjum sem koma að sölu og dreifingu sjávarafurða hefur einnig verið stefnt í málinu.